140. löggjafarþing — 28. fundur,  29. nóv. 2011.

fjárlög 2012.

1. mál
[23:20]
Horfa

Jónína Rós Guðmundsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég verð að viðurkenna að ég þekki ekki til fundahalda í efnahags- og viðskiptanefnd þar sem ég sit ekki í þeirri nefnd en ég benti á það í upphafi máls míns að mér hefur ekki að öllu leyti líkað það vinnulag sem haft er við fjárlagafrumvarp þar sem mér finnst við oft og tíðum fyrst og fremst vera að uppfæra einhverja gamla ramma. Sé það rétt að ræða eigi um tekjuforsendur í fyrramálið finnst mér það ekki góð vinnubrögð, en eins og ég segi get ég ekkert um það sagt þar sem ég hef ekki fengið og ekki séð nein fundarboð þar að lútandi.

Síðan langar mig til að ítreka við hv. þingmann að allt það sem ég sagði áðan er upp úr áliti meiri hluta velferðarnefndar sem ég fór með fyrir fjárlaganefnd þannig að öll sú gagnrýni sem þar kom fram stendur fyllilega, en eftir sem áður finnst mér að þakka eigi það sem vel er gert. Það er búið að draga talsvert úr hagræðingarkröfu, það er búið að bæta fjármunum í tannheilbrigði eins og við ræddum og það er búið að bæta 3,5% ofan á þá bótaflokka sem við gagnrýndum sérstaklega að ekki hefðu verið teknir með.

Þetta með stefnumörkunina og að það þurfi að horfa til langs tíma og heilbrigðisstofnanir þurfi að vita hvers vegna verið er að skera niður hjá þeim og það sé gert í samvinnu við þær, öll sú gagnrýni stendur algjörlega og ég byrjaði á því að lesa hana upp hér.