140. löggjafarþing — 28. fundur,  29. nóv. 2011.

fjárlög 2012.

1. mál
[23:24]
Horfa

Ásbjörn Óttarsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna sem mér fannst mjög athyglisvert að hlusta á, sérstaklega í byrjun þegar hv. þingmaður talaði um að það væri hennar skoðun að breyta ætti vinnubrögðum með það að markmiði að gera þau faglegri í staðinn fyrir að gera það eins og í fjárlagagerðinni með því að hækka sjálfkrafa ákveðna liði hjá viðkomandi ráðuneytum án þess að fara í frekari úttektir. Eins kom fram í máli hv. þingmanns í lok ræðu hennar hefði verið betra þegar menn fóru í niðurskurð hjá heilbrigðisstofnunum að vanda meira til verka. Ég fagna að hv. þingmaður er sammála mér um þessa hluti enda kemur það fram í nefndarálitinu sem hún kynnti fyrir fjárlaganefnd.

Mig langar því að spyrja hv. þingmann hvort það sé ekki eitt af þeim atriðum sem þarf að skoða mjög vandlega þegar við förum í niðurskurð í heilbrigðiskerfinu að ekki verði skorið niður með því að færa til verkefni, og fjármuni um leið, þannig að á endanum verði kannski enginn niðurskurður eða hagræðing hjá ríkinu, verkefnin hefðu bara verið færð til.

Svo hafa sumir bent á nokkuð sem ég þekki ekki og mig langar því að spyrja hv. þingmann um það: Hefur það komið inn á borð velferðarnefndar að heilbrigðisstofnanir sem þurfa að leysa úr ákveðnum verkefnum sem kosta mikla fjármuni hafi í sumum tilfellum vísað sjúklingum á Landspítalann? Viðkomandi heilbrigðisstofnanir taka sem sagt ekki að sér dýrar rannsóknir og beina þar af leiðandi sjúklingum sínum á Landspítalann til þess að spara hjá sér og hagræða og færa þannig kostnaðinn yfir þótt á endanum fari hann úr sama kassa. Hefur þetta komið upp og verið rætt í hv. velferðarnefnd?