fjárlög 2012.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Oddnýju Harðardóttur fyrir ágæta ræðu og ekki síst fyrir að hafa farið aðeins yfir breytt verklag í fjárlaganefnd. Ég tók þátt í ákveðnu starfi með hv. þm. Oddnýju Harðardóttur þegar við vorum báðar í fjárlaganefnd og hún þá sem formaður fjárlaganefndar. Ég vil sérstaklega þakka henni fyrir mikla vinnu í því efni að reyna að breyta, að mínu mati, úreltu vinnulagi fjárlaganefndar þegar kemur að úthlutun safnliða og styrkja. Við erum að reyna að breyta því með samþykki allra flokka nema Framsóknarflokksins. Engu að síður er ákveðinn uggur í mér um að því verði ekki fylgt eftir með markvissum hætti. Ég spyr hv. þingmann hvernig hún sjái fyrir sér hlutverk fjárlaganefndar varðandi það verklag sem við reyndum að koma á varðandi skiptingu safnliðanna, og eins hvernig samstarfið verði á milli þingsins og fjárlaganefndar annars vegar og ráðuneytanna hins vegar til að pólitísk hentistefna ráði örugglega ekki ríkjum heldur verði farið eftir því faglega ferli sem við vonumst til þess að komist á og við reyndum að móta í góðri samvinnu við öll ráðuneyti sem hlut eiga að máli.