fjárlög 2012.
Virðulegi forseti. Jú, ég er sammála hv. þingmanni um að við þurfum að vakta þetta kerfi. Við sem unnum að breytingunum og sitjum ekki í fjárlaganefnd núna þurfum svolítið að fylgjast með því hvernig nefndarmenn fara með þetta og aðstoða þau við að halda kerfinu eins og til stóð.
Það er rétt sem hv. þingmaður bendir á að í þessu bætta kerfi felst ákveðin neytendavernd vegna þess að ráðuneyti, sveitarfélög og sjóðirnir heyra undir stjórnsýslulög en það gerir Alþingi hins vegar ekki þannig að þegar upp er staðið er það bættur hagur þeirra sem sækja um styrki og njóta styrkja úr ríkissjóði að haga umsóknarferlinu og úthlutunarferlinu öllu með faglegri hætti. Ég segi ekki að það hafi allt verið ómögulegt sem áður var gert en hins vegar var það tortryggt og það ríkti ekki mikið traust gagnvart því hvernig Alþingi fór með þessa liði þannig að það skiptir miklu máli að koma því ferli í lag. En við þurfum auðvitað að fylgjast með ferlinu, við þurfum að meta það og halda áfram að bæta það, vakta það og passa að það gangi alla leið. Ég er sannfærð um að hv. fjárlaganefnd er einlæg í því að ætla að fylgja þessu öllu saman áfram og aðrir þingmenn munu síðan aðstoða hana við það verk.