140. löggjafarþing — 28. fundur,  30. nóv. 2011.

fjárlög 2012.

1. mál
[02:34]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er athyglisvert að heyra stjórnarþingmenn berja sér á brjóst og tala um árangurinn. Árangurinn sem menn stæra sig af er unninn í skjóli og undir handleiðslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og slíkra stofnana. Maður veltir hins vegar fyrir sér hvort forgangsröðunin og sú nálgun sem stjórnin hefur haft uppi sé rétt, hvort það sé allt satt og rétt sem er haldið á lofti og samið hefur verið um og hvort verið sé að standa við gerða samninga.

Í frumvarpi til fjárlaga árið 2012 er gert ráð fyrir að hækkun bóta almannatrygginga verði í samræmi við hækkun kjarasamninga, þ.e. 3,5%. Nú kemur fram að Öryrkjabandalagið hefur mótmælt þessu og vill meina að þetta eigi að vera 6,5% samkvæmt þeim samningum sem voru undirritaðir. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvernig standi á þessum mismun og hvort það geti verið þannig að ríkisstjórnin standi ekki við gefin fyrirheit gagnvart þessum aðilum.

Sömu spurningu vil ég heimfæra á yfirlýsingar Alþýðusambands Íslands sem birtir heilsíðuauglýsingar í blöðum í dag þar sem er hreinlega sagt að ríkisstjórnin sé að svíkja samkomulag sem gert var um kjarasamningana með því að fara eingöngu hálfa leið í þeim atriðum sem samið var um, þ.e. að veita 5 þús. kr. í staðinn fyrir 11 þús. kr. Þetta eru miklar tölur og menn eiga að standa við þá samninga.

Í þessu fyrra andsvari langar mig að velta því upp hvort það geti verið að ríkisstjórnin standi ekki við það sem samið var um.