140. löggjafarþing — 28. fundur,  30. nóv. 2011.

fjárlög 2012.

1. mál
[02:39]
Horfa

Árni Þór Sigurðsson (Vg) (andsvar):

Virðulegur forseti. Mér er nokkur vandi á höndum vegna þess að hv. þingmaður kom upp í andsvar sem var aðallega hans eigin vangaveltur um eitthvað sem ekki hefði verið sagt í umræðunni. Í andsvari hans var engri fyrirspurn sérstaklega beint til mín þannig að ég veit ekki alveg hvernig ég á að bregðast við því. Hann nefndi að ekkert hefði verið talað um hag heimilanna eða fyrirtækjanna og þá vil ég þó segja að ég rakti það aðeins áðan þegar ég ræddi um fjárfestingar, atvinnumarkaðinn og kjarasamninga að orðið hefði kaupmáttaraukning og kjarabætur með kjarasamningunum sem að sjálfsögðu þýddi betri hag heimilanna í landinu. Ég ræddi um atvinnuvegafjárfestinguna sem Hagstofan spáir 16% aukningu á næsta ári sem væri meðal annars til vitnis um að það áraði betur hjá fyrirtækjum í landinu. Það er ekki rétt að það hafi ekki verið rætt, að minnsta kosti kom ég inn á þessi mál. Hvort aðrir hafa gert það með sama hætti eða ekki skal ég ekki segja um.