fjárlög 2012.
Herra forseti. Það er enginn að tala um að loka landinu. En á sama tíma og skorið er niður hjá venjulegu fólki í landinu, í heilbrigðisþjónustu — okkur berast fregnir af heilbrigðisstofnunum allt í kringum landið þar sem þjónusta er orðin af svo skornum skammti að það er einungis tímaspursmál hvenær mjög alvarlegar afleiðingar munu hljótast af því.
Á sama tíma er helmingur ráðuneyta þessa lands og undirstofnana þeirra að fara í á fjórða þúsund utanlandsferðir á fyrstu níu mánuðum ársins. Í ljósi þessa getur það ekki talist vera forgangsröðun í þágu þeirra sem minna mega sín.
Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann telji ástæðu til að fara betur ofan í þessi mál og skoða hvort ekki sé eðlilegt að ráðuneytin og (Forseti hringir.) undirstofnanir þeirra fari í markvissar aðgerðir til að draga úr bruðli við svona lagað á meðan skorið er niður í (Forseti hringir.) veikustu þáttum samfélagsins.