140. löggjafarþing — 28. fundur,  30. nóv. 2011.

fjárlög 2012.

1. mál
[04:51]
Horfa

Ásmundur Einar Daðason (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er alveg rétt, ég og hv. þingmaður vorum saman í fjárlaganefnd á síðasta þingi. Sá sem hér stendur var í alþjóðanefndum, sat í Norðurlandaráði og var varamaður í Vestnorræna ráðinu. Sá sem hér stendur hefur ekki nákvæmar tölur yfir þær utanlandsferðir sem hann hefur farið í, en það er hins vegar eðlilegt að það verði skoðað hvaða þingmenn hafa farið til útlanda. Þá þarf sá sem hér stendur ekki að óttast sínar utanlandsferðir eða kostnað við þær. En hins vegar er það ríkisstjórnin í landinu sem stýrir þessum þáttum.

Hv. þingmaður hlýtur að geta tekið undir það með mér að af þeim 3.202 utanlandsferðum fyrstu níu mánuði þessa árs hjá helmingi ráðuneytanna þar hefði eitthvað mátt spara. Kostnaðurinn 711 milljónir. Þá eru eftir utanríkisráðuneyti, sem að öllum líkindum er stærst, innanríkisráðuneyti og fleiri ráðuneyti, efnahags- og viðskiptaráðuneyti, umhverfisráðuneyti; 3.202 utanlandsferðir farnar á fyrstu níu mánuðum þessa árs. Er það eðlilegt á sama tíma og við skerum niður í heilbrigðiskerfinu?