140. löggjafarþing — 28. fundur,  30. nóv. 2011.

fjárlög 2012.

1. mál
[06:55]
Horfa

Ásbjörn Óttarsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég held að enginn deili um það í þessum sal, ég hef alla vega ekki heyrt það, að mestu blóðpeningarnir eru auðvitað vaxtagjöldin. Það er náttúrlega mjög dapurlegt því að eðli málsins samkvæmt er ekki hægt að nýta þá peninga sem verið er að borga í vexti til að styrkja innviði samfélagsins, hvort sem það er í velferðarmálum, heilbrigðismálum, menntamálum eða hverju öðru sem það er.

Þess vegna er ég þeirrar skoðunar, og ég held að það séu flestir líka, að mjög mikilvægt sé að ná tökum á útgjöldum ríkissjóðs. Eins og það lítur út í frumvarpinu er gert ráð fyrir um 21,5 milljarða halla á næsta ári en innbyggt í frumvarpinu eru að mínu viti 14–30 milljarðar, ég átta mig ekki alveg á því, það er einskiptissamkomulagið um Sparisjóð Keflavíkur sem ræður mestu í því. Hallinn gæti því hugsanlega, nú ætla ég ekki að vera með neitt svartsýnisraus, orðið mjög svipaður á þessu ári.

Því vil ég spyrja hv. þingmann hvort hann hafi ekki áhyggjur af því að það gæti orðið mjög erfitt að loka gatinu í restina, reyndar er búið að loka stórum hluta af því. Og hvort hann taki ekki undir það að gríðarlega mikilvægt sé að okkur takist að loka fjárlagagatinu og minnka fjárlagahallann þannig að við getum farið í raun og veru að greiða af lánunum. Við erum alltaf að miða við það þegar við erum loksins búin að ná tökum á ríkissjóði en þá eigum við eftir að greiða af lánunum sem er líka mjög mikilvægt að menn átti sig á.

Þess vegna spyr ég hv. þingmann: Tekur hann undir þær áhyggjur hjá mér að mjög mikilvægt sé að það gangi eftir að loka fjárlagahallanum?