störf þingsins.
Hæstv. forseti. Ég kveð mér hljóðs um störf þingsins til að vekja athygli á tveimur eða þremur þáttum.
Í fyrsta lagi er ljóst að inn í þingið koma mjög mörg stjórnarfrumvörp afar seint sem setur störf þingsins í nokkuð uppnám nú á síðustu dögunum fyrir jól og mun augljóslega gera okkur erfiðara fyrir að halda þær tímaáætlanir sem starfsáætlun þingsins gerir ráð fyrir. Ég veit ekki hvers vegna stjórnarfrumvörp koma svona seint. Hugsanlega er það vegna þess að ágreiningur hefur verið um mál milli flokkanna eða innan flokkanna, því geta aðrir svarað, en það vekur hins vegar athygli að tekin er 1. umr. um fjölmörg mál sem sagt er að liggi á og það er kominn 2. desember.
Í annan stað ætlaði ég að vekja athygli á því að gert er ráð fyrir að þriðja og síðasta umræða um fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar fari fram næstkomandi þriðjudag. 2. umr. fjárlaga sem lauk í vikunni benti til þess að fjölmargir þættir eru ókláraðir enn þá varðandi frumvarpið og sá tími sem hv. fjárlaganefnd ætlar sér til að klára málin er augljóslega allt of skammur. En hvers vegna er slík pressa sett á fjárlagafrumvarpið, hv. þingmenn? Augljóslega vegna þess að ríkisstjórninni eða forustumönnum hennar liggur á að klára fjárlagafrumvarpið vegna þess eldfima ástands sem nú ríkir innan ríkisstjórnarinnar. (Forseti hringir.) Það lýsir sér í því að einstakir ráðherrar þurfi að koma fram og biðja öðrum ráðherrum ríkisstjórnarinnar vægðar, ekki gagnvart (Forseti hringir.) stjórnarandstöðunni heldur hverjir (Forseti hringir.) gagnvart öðrum.