140. löggjafarþing — 30. fundur,  2. des. 2011.

ósakhæfir fangar á Íslandi og aðbúnaður þeirra fyrr og nú.

[11:29]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (S):

Frú forseti. Það er hægt að taka undir margt sem sagt hefur verið úr þessum stóli vegna þessa máls sem tengist ósakhæfum afbrotamönnum eða einstaklingum. Í rauninni get ég tekið undir það sem bæði hv. þm. Sigurður Ingi Jóhannsson sagði og ekki síður hv. þm. Björgvin G. Sigurðsson. Ég vek athygli á því að menn geta verið ósakhæfir vegna tveggja atriða, annars vegar vegna þess að menn hafi ekki náð sakhæfisaldri sem er 15 ára og hins vegar að menn hafi verið dæmdir ósakhæfir. Ég vek líka athygli á öðru í tengslum við unga afbrotamenn sem eru sakhæfir, það eru einstaklingar sem eru 15–18 ára. Það er nokkuð drjúgur hópur einstaklinga á þessum aldri sem meðal annars barnaverndaryfirvöld og barnaverndarnefndir eiga að hafa afskipti af.

Ég vek athygli hæstv. velferðarráðherra, af því að hann ber líka ábyrgð á barnaverndarnefndum, á að skoða til hlítar hvernig ungum afbrotamönnum reiðir af sem eru rétt komnir yfir sakhæfisaldurinn, 15, 16 ára — við vitum að það er nokkuð stór hópur, 15, 16, 17 ára sem þarf á því að halda. Skoða þarf hvernig barnaverndaryfirvöld eða félagsmálayfirvöld fylgjast með þessum mönnum þegar þeir eru komnir í fangelsi. Hvaða réttindi hafa þeir þegar þeir eru komnir inn? Hvernig er þeim fylgt eftir? Þótt maður geti verið fylgjandi hörðum refsingum, og refsingum almennt, er það sem við viljum ná fram með vistun, bæði inni í fangelsi og líka á deildum eins og á Sogni, að þegar einstaklingarnir koma út séu þeir betri og hæfari til að takast á við það samfélag sem við búum í. Það skiptir mestu máli að við getum gert einstaklingana að betri mönnum. Þess vegna beini ég því til hæstv. velferðarráðherra (Forseti hringir.) að skoða sérstaklega hvernig barnaverndarnefndir fylgja eftir ungum afbrotamönnum inni í fangelsinu.