ósakhæfir fangar á Íslandi og aðbúnaður þeirra fyrr og nú.
Forseti. Ég þakka kærlega fyrir þessa umræðu um málaflokk sem mér finnst mjög mikilvægur. Ég tek undir það sem fram kom í máli hv. þingmanna Björgvins G. Sigurðssonar og Sigurðar Inga Jóhannssonar og mér er eiginlega fyrirmunað að skilja út frá árangrinum sem náðst hefur á Sogni — nú hristir hv. þm. Margrét Tryggvadóttir höfuðið — en samkvæmt (Gripið fram í.) í það minnsta þeirri tölfræði og þeim árangri sem liggur að baki, að fólk hefur ekki þurft að leggjast aftur inn, spyr ég mig hver ástæðan fyrir þessu sé. Ég veit að það er oft gild ástæða fyrir því að ýmis meðferðarúrræði eru ekki höfð á höfuðborgarsvæðinu. Það er einmitt vegna áreitis frá óæskilegum áhrifavöldum í lífi þessa fólks sem það þarf að fá rými til þess að geta styrkt sig nægilega mikið til að geta komið sér út úr oft mjög óæskilegum félagsskap.
Mig langar því að spyrja hæstv. ráðherra hvort raunin sé að hin rekstrarlega óhagkvæmni vegi þyngra en annað eða hvað það er nákvæmlega á mannamáli sem gerir það að verkum að talið er betra að hafa þessa starfsemi í Reykjavík, á Kleppi, en á Sogni.
Síðan langar mig að taka undir mikilvægi þess að hafa hér almennilegar umræður um úrræði fyrir unga fanga því að ég hef tekið eftir því að margir þeirra fá mjög litla eftirfylgni og stuðning eftir að þeir eru komnir í fangelsi með sér mun eldri afbrotamönnum.