140. löggjafarþing — 30. fundur,  2. des. 2011.

réttargeðdeildin að Sogni og uppbygging réttargeðdeildar.

[11:56]
Horfa

Margrét Tryggvadóttir (Hr):

Forseti. Í ályktun sem Geðhjálp sendi frá sér í haust kemur fram að félagið hafi um áraraðir barist fyrir því að réttargeðdeildinni á Sogni yrði lokað í þeirri mynd sem hún hefur starfað. Eins og kom fram í máli ráðherra gerði Geðhjálp úttekt á Sogni fyrir þremur árum. Í ljós kom að aðbúnaður var ekki eins og best verður á kosið og í ályktuninni frá Geðhjálp er talað um algera vanhæfni stofnunarinnar til að endurhæfa geðsjúka brotamenn. Þetta eru stór orð.

Fagdeild geðhjúkrunarfræðinga hefur einnig lýst yfir stuðningi við að starfsemin á Sogni verði færð yfir á Klepp. Þar telja þeir að betur sé hægt að tryggja faglega þjónustu, bæði við sjúklinga en ekki síður við aðstandendur þeirra. Auk þess er mun auðveldara að tryggja öryggi, bæði sjúklinga og starfsfólks á Kleppi, auðveldara að færa starfsfólk á milli deilda og meðferðin ætti að verða betri. Þessi sjónarmið og ákaflega góður fundur sem við þingmenn Suðurkjördæmis áttum með stjórnendum Landspítala og geðsviðs þess nægði til að sannfæra mig um að flutningur réttargeðdeildarinnar frá Sogni er gott skref, skref í rétta átt. Þessi flutningur er á faglegum forsendum og ég styð hann þrátt fyrir að vera 10. þm. Suðurkjördæmis. Hagsmunir sjúklinga verða alltaf að vera í fyrirrúmi og ég tel að svo sé í þessu tilfelli. Þetta er veikasta fólkið okkar og það verður að vera í fyrirrúmi í þessari umræðu.