tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi.
Frú forseti. Ég þakka fyrir það frumvarp sem fram er komið og snýst um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi. Ég þakka hæstv. iðnaðarráðherra fyrir mjög góða og sanngjarna ræðu sem hún flutti hér áðan og vék þar að nokkru sem er óhjákvæmilegt að koma að í sambandi við þetta mál, þ.e. þeirri dæmalausu umsögn sem fylgir frumvarpinu frá fjármálaráðuneytinu, nánar tiltekið fjárlagaskrifstofu.
Það er mjög mikilvægt fyrir þingið, ekki bara í þessu máli heldur í öllum málum, að fá góðar og skynsamlegar umsagnir sem hægt er að treysta að verulegu leyti og eru unnar af hlutleysi. Því miður get ég ekki sagt neitt af þessu um þessa furðulegu umsögn, sem útskýrði þó fyrir mér marga hluti því að í henni kemur fram magnaður óvilji í garð þessarar mikilvægu starfsgreinar. Þetta rökstyð ég með því að hvergi í umsögninni er minnst á þær tekjur, þá veltu og þá ferðamenn sem þessi starfsemi laðar til landsins, það er ekki vikið orði að þeim ársverkum, þeirri atvinnu sem þessi grein skapar og endurgreiðslurnar auka í miklum mæli.
Hvers lags umsögn er það sem snýst um það á mörgum blaðsíðum að rakka niður frumvarp sem umsögninni er ætlað að fjalla hlutlaust um? Til að særa ekki næmar tilfinningar kollega míns, hv. þm. Ásbjörns Óttarssonar, vil ég náttúrlega taka fram og undirstrika að hér er aðeins talað um fjármálaskrifstofu fjármálaráðuneytisins en ekki minnst á einstök nöfn og þótt flestir í þessum sal þekki fingraför höfundar eru engin nöfn nefnd enda er því miður fjarverandi sá sem ætti kannski að útskýra fyrir okkur hvernig á þessari umsögn stendur, en það er fjármálaráðherra.
Íslensk kvikmyndagerð er stóriðjan meðal íslenskra listgreina. Það er alveg stórmerkilegt í landi okkar, sem sumir halda að sé menningarland, að það skuli vera komið árið 2011 þegar nefnd skilar loksins af sér skýrslu og bendir á að íslenskir listamenn og þeir sem starfa í hinum skapandi greinum séu ekki aumingjar upp til hópa sem ekki nenni að vinna venjulega vinnu heldur vilji lifa á ríkinu til að gera það sem þeim sjálfum finnst skemmtilegt. Þessi merkilega skýrsla um stöðu hinna skapandi greina í íslensku efnahagslífi er tímamótaverk og gjörbreytir eða gæti gjörbreytt þeim mikilvæga þætti sem menningin gegnir í þjóðfélagi okkar þegar menn fara að átta sig á því í vaxandi mæli hvílíkt efnahagslegt gildi menningin hefur.
Menning er hins vegar mjög dýrt sport. Frægur íslenskur rithöfundur, einn af okkar bestu rithöfundum, Indriði G. Þorsteinsson heitinn, sagði einu sinni að mér áheyrandi að dýrasta sport sem Íslendingur gæti veitt sér væri að skrifa bækur, það væri dýrara en að veiða lax. Að vísu hafa laxveiðileyfi nokkuð hækkað frá þeim tíma þegar þessi ummæli féllu en það er enn jafnmikil efnahagsleg fórn og áður að skrifa bækur.
Ef við lítum aðeins á listamenn sést að til þess að gerast listamaður á Íslandi þarf að afsala sér öllum eða nær öllum möguleikum á því að verða nokkru sinni efnahagslega sjálfstæður einstaklingur. Svoleiðis er það, það er ekkert öðruvísi. Þeir sem fást við list hér eiga möguleika á því að fá starfslaun listamanna. Þau eru óviss tekjuliður og veitt lengst til þriggja ára í senn. Þau nema 300 þús. kr. á mánuði og til að fá þessi laun þurfa rithöfundar eins og aðrir listamenn að uppfylla einhver gæðaskilyrði sem úthlutunarnefndir setja. Efnahagslegt sjálfstæði geta íslenskir listamenn eingöngu öðlast með því að skara svo mikið fram úr í grein sinni að þeir skari einnig fram úr á alþjóðavettvangi. Ekki hafa margir íslenskir listamenn náð því að slá í gegn erlendis enda er fjarri því að það sé eðlilegt markmið og tilgangur íslenskra listamanna að slá í gegn utan lands. Auðvitað er erindi listamanna fyrst og fremst við umhverfi sitt, nærsamfélag sitt, þjóð sína og þeir eru færri sem stefna frá upphafi á ferli sínum að því að slá í gegn erlendis.
Við vorum að ræða um stöðu íslenskrar tungu svo að það hittist vel á að þessi umræða skuli koma í beinu framhaldi vegna þess að ég gleymi aldrei þessum orðum sem Matthías Johannessen, skáld og þáverandi ritstjóri Morgunblaðsins, sagði við mig einu sinni: Lokaorrustan um framtíð íslenskrar tungu mun fara fram á hvíta tjaldinu. Ég held að það sé mikið til í þessu hjá Matthíasi enda glöggur maður að mjög mörgu leyti.
Íslensk kvikmyndagerð telur u.þ.b. 750 ársverk og veltir 10,5 milljörðum að því er talið er. Framlög til þessarar greinar eru hverfandi lítil. Þessi grein er ekki rekin með niðurgreiddu rafmagni. Hún er ekki rekin með því að henni séu afhentar auðlindir þjóðarinnar á borð við fiskimið eða eitthvað því um líkt til þess að notfæra sér að vild, þannig er það ekki. Menn hafa yfirleitt ekkert annað að byggja á en eigið hugvit, framtakssemi og ákveðinn vilja til að brjótast áfram í þeirri grein sem er sennilega sú grein sem hvað ómögulegast er að standa í og fá til að ganga upp fjárhagslega á okkar litla landi.
Lengi hefur af hálfu íslenskra stjórnmálamanna og embættismanna ríkt mjög lítill skilningur á mikilvægi kvikmyndagerðar, þessarar greinar sem hefur byggst upp í landinu úr engu á undanförnum áratugum. Um mikilvægi kvikmyndagerðar er hægt að hafa langar tölur. Ég ætla bara að benda á það eitt að ein af ástæðum þess að enska er stærsta tungumál heimsins í dag er sú að í Bandaríkjunum er miðpunktur alþjóðlegrar kvikmyndagerðar og hún fer fram á enskri tungu. Hollywood hefur friðsamlega sigrað stærri landsvæði og málsvæði en legíónir Rómaveldis gerðu á sínum tíma.
Erlendar kvikmyndir hafa mikil áhrif á málvitund og málkunnáttu hverrar þjóðar. Þess vegna eru stórþjóðir eins og Þjóðverjar, Frakkar, Spánverjar og Ítalir mjög ákveðnar í því að standa vörð um tungumál sín þó að í augum Íslendings líti þessi tungumál út fyrir að vera ósigrandi og standa að eilífu. Þetta er m.a. gert með því að allt erlent kvikmyndaefni, ekki bara handa börnum heldur handa öllum, er hljóðsett á viðkomandi tungumál. Á þessu hafa Íslendingar ekki efni. Við höfum ekki efni á að standa vörð um okkar litla tungumál. Nú er það orðið of seint vegna þess að menn rækju upp ramakvein ef hljóðsetja ætti Hollywood-myndir á íslensku hér á landi vegna þess að allir eru orðnir enskumælandi af því að horfa á þessar sömu kvikmyndir á ensku þannig að mikilvægt tækifæri hefur glatast.
Ég sagði áðan að í kvikmyndagerð væru 750 ársverk. Í kringum Kárahnjúkavirkjun og þá álbræðslu sem er afleiðing hennar eru með afleiddum störfum 1.500 ársverk. Þessi framkvæmd kostaði tugi milljarða, þessi framkvæmd klauf þjóðina, þessi framkvæmd er enn umdeild, þessi framkvæmd er enn eins og myllusteinn um háls Landsvirkjunar en forstjóri hennar kvartaði nýverið undan því að arðsemi virkjunarinnar væri fyrir neðan allar hellur. (Gripið fram í.) Hvað sem því líður hefur aldrei verið farið fram á slíkar fjárfestingar í kvikmyndagerð.
Ef iðnaðarráðherra fyrir nokkrum árum hefði ekki haft þann skilning á nútímanum til að bera að hefja endurgreiðslu á hluta þess fjár sem varið er til kvikmyndagerðar hérlendis væri kvikmyndagerð hér á landi snöggtum minni. Þess vegna furða ég mig enn og aftur á þessari furðulegu umsögn úr sjálfu fjármálaráðuneytinu þar sem hvergi er að finna skilning á því að ef einhver aðili kemur með 100 milljónir og býðst til að versla við mann, eiga viðskipti við mann, láta 100 milljónir inn í fyrirtæki manns og maður getur veitt fólki atvinnu, tekið út 30–40% arð og það eina sem farið er fram á fyrir þessi gígantísku viðskipti er 20% afsláttur — ég kalla það góð viðskipti ef einhver vill versla við mig og koma og skipta við mig ef ég veiti honum bara 20% afslátt. Það er ekki eins og Ísland, sem er fallegt og merkilegt land, sé sérstaklega heppilegt til kvikmyndagerðar.
Eins og ég sagði áðan er háborg kvikmyndagerðar heimsins Hollywood í Kaliforníufylki í Bandaríkjunum. Ástæðan fyrir því er tiltölulega einföld: Þar er heimsmálið, enska, talað og þar að auki eru veðurfræðingar nokkurn veginn alveg óþarfir á því svæði vegna þess að þar er góðviðri oft dögum saman, jafnvel oftar en á Akureyri.
Ég fagna þessu frumvarpi, ég fagna skilningi iðnaðarráðherra á því að handverk og skapandi greinar eða listir þurfi að eiga sér efnahagslegar forsendur til að skila auði í þjóðarbúið.