140. löggjafarþing — 30. fundur,  2. des. 2011.

tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi.

306. mál
[14:19]
Horfa

Ásbjörn Óttarsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða ræðu og athyglisverða sem ég hlustaði á með mikilli athygli. Við erum algjörlega með sama skilning á því hvað það þýðir að vera með skattalega hvata til að búa til störf og atvinnu í landinu, alveg sama hvað atvinnugreinin heitir.

Það er tvennt sem mig langar að spyrja hv. þingmann um. Í fjáraukalögum sem við samþykktum um daginn voru settar 8,5 milljónir til aðalskrifstofu ráðuneytisins til að fara í stefnumótun í kvikmyndagerð. Satt best að segja fannst mér það vera dálítið há upphæð miðað við heildarupphæðina sem lögð er í Kvikmyndaskólann. Því langar mig að spyrja hv. þingmann hver skoðun hans sé á því máli, hvort nauðsynlegt sé að fara í þá vinnu í ráðuneytinu — þetta er í menntamálaráðuneytinu, ég sá að hæstv. iðnaðarráðherra brá við þetta, en þetta er til menntamálaráðuneytisins. Við þekkjum allar þær deilur sem urðu í kringum það að tryggja framtíð Kvikmyndaskólans.

Mig langar til að spyrja hv. þingmann hvort hann telji í fyrsta lagi þörf á þessu og í öðru lagi hvort það sé ekki vel í lagt á aðalskrifstofu ráðuneytisins þegar verið er að hlúa að iðngreininni og skólanum eins og gert er. Því finnst mér þessi tala frekar há.

Eins vil ég spyrja hv. þingmann um eitt, það kemur reyndar fram í umsögn fjármálaskrifstofunnar, ég ætla ekki að fara djúpt í það hér, en mig langar að spyrja hv. þingmann um það sem kemur fram þar. Það er þetta tvöfalda kerfi — menn hafa nú bent á að hugsanlega sé betra að hafa það einfaldara — þ.e. annars vegar þessir verkefnastyrkir og hins vegar endurgreiðsla. Hver er skoðun hv. þingmanns á því? Væri ekki betra að hafa kerfið einfaldara til að hafa betri heildaryfirsýn yfir hlutina. Hver er skoðun hv. þingmanns á þessum tveimur hlutum?