140. löggjafarþing — 30. fundur,  2. des. 2011.

tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi.

306. mál
[14:21]
Horfa

Þráinn Bertelsson (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka fyrirspyrjanda, hv. þm. Ásbirni Óttarssyni, merkilegar fyrirspurnir sem ég skal reyna að svara með mikilli ánægju.

Ef ég tek þá síðari fyrst — og þó, það borgar sig reyndar ekki að flækja þetta, við skulum hafa þetta einfalt. Sú fyrri snýst um það hvernig mér lítist á að verja 8,5 milljónum til stefnumótunar sem eigi að fara fram í menntamálaráðuneytinu, er það ekki rétt? Mér líst í sjálfu sér ágætlega á það svo fremi sem eitthvað vitrænt kemur út úr því en það er náttúrlega undir hælinn lagt. Ef það skilningsleysi sem ríkt hefur í því lykilráðuneyti í garð kvikmyndagerðar, ég ætla ekki að tala um aðrar listir eða handverk, þ.e. ef þekking og skilningur kemst á annað plan við þá stefnumótun er þetta sáraódýrt og mun skila sér þúsundfalt, ég lofa því. En ef ekki, þá getur vel verið að þetta sé til einskis.

Hin spurningin — ég á aðeins 32 sekúndur eftir svo ég næ ekki að svara henni fyrr en í seinna andsvari mínu en ég skal byrja. Tekjustofnar frá hinu opinbera til kvikmyndagerðar eru tveir. Það eru annars vegar framlög frá Kvikmyndasjóði gegnum Kvikmyndamiðstöð og hins vegar þær endurgreiðslur sem við erum núna að ræða um. Nú ætla ég að leyfa hv. þingmanni að koma aftur í seinna andsvar og svo skal ég klára að svara honum.