140. löggjafarþing — 31. fundur,  5. des. 2011.

breytingar á ESB og aðildarumsókn Íslendinga.

[15:05]
Horfa

fjármálaráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg):

Frú forseti. Varðandi fyrstu spurningu hv. þingmanns um þróun mála úti í Evrópu þá fylgjumst við að sjálfsögðu öll með því, geri ég ráð fyrir. Ég geri líka ráð fyrir að við vonum öll hið besta í þeim efnum og að evruríkjunum og Evrópusambandinu takist að leysa úr þeim mikla vanda sem þar er uppi án verulegra stóráfalla vegna þess að það verða litlar gleðifréttir fyrir Ísland ef þar fer allt á hinn verri veg. Þess vegna kann ég ekki vel umræðu sem nærist á því að þarna sé við mikla erfiðleika að stríða. Það er stutt í að á bak við liggi ósk manna um að þetta fari allt til fjandans þarna úti þannig að menn hafi góða afsökun til að koma ekki nálægt Evrópu á meðan. En svo einfaldur er nú heimurinn ekki því þarna liggja um 70% af okkar útflutningsmörkuðum og það hvernig málin þróast í efnahagslegu tilliti á þessu svæði mun hafa mikil áhrif á möguleika okkar á komandi missirum og árum til að hífa okkur sjálf enn betur upp úr kreppunni.

Ef við tækjum einhverja skyndiákvörðun um að hætta viðræðunum værum við ákaflega litlu nær. Málið hyrfi ekki þrátt fyrir það. Ég held að nær sé að fylgjast vel með því hverju þarna vindur fram og hver verða viðbrögð evruríkjanna og Evrópusambandsins við þessum vanda því að við áskiljum okkur að sjálfsögðu, það geri ég að minnsta kosti, allan rétt til að skoða það. Verði meiri háttar breytingar á eðli og inntaki samstarfs Evrópuríkjanna sem spretti upp úr þessum hremmingum er það nýtt og sjálfstætt mál sem við skoðum eðlilega. En fram til þessa er maður litlu nær um hver niðurstaðan verður. Nú er enn einn hringurinn í gangi með stórum leiðtogafundi í vikunni o.s.frv. þannig að ég hygg að það sé hyggilegra að halda sér fast og sjá hverju þarna fram vindur.

Þessir hlutir breyta því ekki að við þurfum að skýra það hvernig framtíðartengslum okkar við Evrópusambandið verður háttað (Forseti hringir.) því þau verða vonandi mikil og stór hluti af okkar viðskiptakjörum o.s.frv. Ég er því ekki talsmaður einhverrar taugaveiklunar eða skyndiákvarðana (Forseti hringir.) í þeim efnum.