140. löggjafarþing — 31. fundur,  5. des. 2011.

deilur Vantrúar við guðfræðideild HÍ.

[15:19]
Horfa

innanríkisráðherra (Ögmundur Jónasson) (Vg):

Hæstv. forseti. Hv. þingmaður auglýsir eftir málefnalegri umræðu um viðkvæmt mál. Sú umræða getur ekki farið fram á tæpum tveimur mínútum í Alþingissal og er ég ekki tilbúinn til að gefa neinar afgerandi yfirlýsingar eða skuldbindandi yfirlýsingar fyrir hönd ráðuneytisins í þessu efni.