staða framhaldsskólanna.
Hæstv. forseti. Það er af mörgu að taka þegar við ræðum stöðu framhaldsskólanna. Í fyrsta lagi, eins og hér hefur verið minnst á, er fjárhagsstaða framhaldsskólanna mjög erfið og þó að hún sé misjafnlega erfið milli skóla er ljóst að yfir línuna er hún erfið. Sérstaklega eiga skólarnir sem voru í skuldasöfnun fyrir hrun erfiðan rekstur fyrir höndum í vetur.
Ýmsar ráðstafanir hafa verið gerðar til að koma í veg fyrir brottfall nemenda í framhaldsskólum og sérstaklega við núverandi aðstæður að halda nemendum þó í skóla í því atvinnuleysi sem skapaðist eftir hrunið. Þau úrræði sem hefur verið gripið til virðast virka sem betur fer. Nýjar áherslur og nýjar aðstæður sem skólarnir þurfa að vinda sér í eru að halda áfram að innleiða nýja námskrá. Þeir hafa margir gert það við þröngan kost og erfiðar aðstæður og ber að virða það, en það sem mér finnst líka skipta máli er að huga áfram að fjarnáminu, að samtengingu skóla þannig að minni skólarnir geti samnýtt ákveðnar greinar til að auka framboð hjá sér. Þetta á þá við um hinar skapandi greinar en ekki síður viðmót kennaranna sjálfra til skólastarfsins, viðhorf foreldranna til skólans þannig að skólinn sé ekki talaður niður, þannig að það sé talað til skólans á uppbyggilegan hátt og með virðingu eins og ég veit að Finnar hafa tamið sér og ber skólinn þess líka merki.