sjúkraflugvellir.
Virðulegi forseti. Í ljósi þess að ég hef gagnrýnt hæstv. innanríkisráðherra út af allt öðru máli en þessu undanliðinn dag þykir mér ástæða til þess að hrósa honum sérstaklega fyrir það svar sem hann fór með hér í pontu Alþingis og lagði greinilega vinnu í og það er af hinu góða. Ég þakka fyrir þessi svör, þau eru greinargóð, og hlakka til að lesa umrætt skjal sem ráðherra benti á.
Í starfi mínu hefur oft komið fram í samtölum við sveitarstjórnarmenn víða um land, ekki bara í því kjördæmi sem ég tilheyri heldur víðast hvar um landið, að íbúar leggja traust sitt á sjúkraflug af augljósum og eðlilegum ástæðum. Sakir samgangna en ekki síst vegna vályndra veðra sem geta skollið á hvenær sem er þá er þessi þjónusta ein af meginstoðum heilbrigðisþjónustu á Íslandi og þess vegna er áríðandi að þessum sjö malarvöllum sem ráðherra gat um sé vel við haldið og þeir séu ekki byrði á hverju sveitarfélagi fyrir sig sem vill vitaskuld sýna metnað í þá veru.
Ég vil nota þetta tækifæri, frú forseti, vegna þess að mér finnst umræðan brýn, til þess að hrósa sjúkraflutningamönnum og sjúkraflugmönnum Íslands fyrir mikilvæg störf þeirra við erfiðar aðstæður oft og tíðum. Þeir vinna þrekvirki á hverjum degi því að eins og ég gat um eru 430 flug að jafnaði á ári, meira en eitt flug á dag. (Forseti hringir.) Þessir menn, sem eru ekki að leita eftir athygli, þyrftu að vinna við bestu skilyrði sem hugsast getur.