140. löggjafarþing — 31. fundur,  5. des. 2011.

fjármálalæsi.

153. mál
[16:33]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Magnús Orri Schram) (Sf):

Virðulegi forseti. Nú er komið að seinni hluta fyrirspurnar minnar en fyrri hlutanum var beint að efnahags- og viðskiptaráðherra og snerti einkum fjármálalæsi neytenda. En nú langar mig að beina spurningu til hæstv. menntamálaráðherra og spyrja um stöðu fjármálalæsis í skólakerfinu. Ég byrja á að vitna í könnun sem gerð var árið 2005 þar sem rannsakað var fjármálalæsi íslenskra framhaldsskólanema. Niðurstöður rannsóknarinnar bentu sterklega til þess að á þeim tíma hafi framhaldsskólanemendur ekki verið sérstaklega vel að sér í fjármálum, en þrátt fyrir slaka frammistöðu hafði tæpur helmingur aðspurðra frekar mikinn eða mjög mikinn áhuga á frekari fræðslu. Þeir sem unnu mest með námi voru betur að sér í fjármálum en þeir sem unnu minna eða ekki neitt með skóla og þá reyndust karlmenn yfirleitt vera betur læsir á fjármál en konur. Marktækur munur var á þekkingu nemenda á einstökum þáttum fjármála eftir því hver aðalviðskiptabanki þeirra var og einnig var marktæk jákvæð fylgni milli menntunar föður og fjármálalæsis ungmennis.

Markviss fjármálalæsiskennsla var á þessum tíma og er enn sem komið ekki hluti af námsefni nemenda á Íslandi þannig að þegar kemur að áhrifum vaxta, verðbólgu og verðtryggingar á líf okkar fá Íslendingar falleinkunn, eins og sú könnun sem ég vitnaði til í fyrri fyrirspurn minni bar merki um.

Undanfarið hefur íslenska þjóðin öðlast ígildi meistaraprófs eða meira prófs í hruntengdri þjóðhagfræði, svo að ég vitni í blaðagrein Breka Karlssonar hjá Stofnun um fjármálalæsi, almenningur er nú sjóaður í hugtökum eins og vergri landsframleiðslu, heildarskuldum og skuldatryggingarálagi en skortir samt sem áður grunninn og skilning á hugtökum sem mikilvæg eru til dæmis hvað snertir lántöku og sparnað.

Staðreyndin er sú að börn og unglingar fá takmarkaða fræðslu um fjármál í skólum. Í ágúst 2008 skipaði viðskiptaráðherra nefnd til að kanna stöðu fjármálalæsis og skoðaði sú nefnd skólakerfið sérstaklega í því sambandi. Athugun nefndarinnar leiddi í ljós að fræðsla um fjármál er almennt af mjög skornum skammti í grunn- og framhaldsskólum. Fjármálalæsi er einungis hluti af fræðslu í lífsleiknitímum ef kennari hefur tök eða áhuga á að kenna það námsefni og hafði nefndin áhyggjur af því að kennarar hafi ekki nægilega hæfni til þess að sinna kennslu á því sviði. Í framhaldsskólunum kom fram að fræðsluefnið er fábrotið, aðstaða er mjög bágborin og kennara skortir þekkingu til að geta eflt fjármálalæsi nemenda.

Nefndin kemst að þeirri niðurstöðu að börn og unglingar fái mjög takmarkaða fræðslu um fjármál en hana þurfi að bæta enda sé viðfangsefnið mikilvægt. Nefndin lagði fram sjö tillögur um hvað betur mætti fara í menntunarmálum og þess vegna langar mig að beina þeirri fyrirspurn til ráðherra hvað ráðuneytið hefur gert með þær tillögur sem fram komu í niðurstöðukafla nefndarinnar, hún skilaði af sér í febrúar 2009. Eins vil ég spyrja um hvort ráðuneytið hafi markað stefnu um hvernig vinna eigi að fjármálalæsi í skólakerfinu.