140. löggjafarþing — 31. fundur,  5. des. 2011.

fjármálalæsi.

153. mál
[16:42]
Horfa

mennta- og menningarmálaráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmönnum fyrir umræðuna og ég ítreka að það er mikilvægt að við byggjum fræðsluna ekki síst á forsendum fagfólksins í skólunum en með góðu samstarfi við þá sem best til þekkja. Ég held líka að það séu mörg önnur áhugaverð verkefni í þessum geira sem vert væri að skoða og þá sérstaklega það sem fram kom í fyrirspurn hv. þingmanns um rannsóknina sem gerð var árið 2008. Þar kom fram að fjármálalæsi virðist vera karllægara en ýmislegt annað læsi og væri mjög áhugavert að greina þær niðurstöður betur. Það kæmi mér því ekki á óvart ef við ættum eftir að ræða þessi mál á hinum hagnýta vettvangi, hvernig við sjáum þetta útfært í skólum, en líka að rannsaka miklu betur hvernig kennslan nýtist best báðum kynjum. Það er mjög áhugaverður munur sem hv. þingmaður nefndi áðan.