140. löggjafarþing — 31. fundur,  5. des. 2011.

Náttúruminjasafn Íslands.

325. mál
[16:53]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Siv Friðleifsdóttir) (F):

Virðulegur forseti. Það svar sem hæstv. ráðherra hefur gefið er ekki hægt að túlka öðruvísi en svo að mjög lítið sé að ske í þessum málum, gríðarlega lítið. Það eru vonbrigði. Það kom hér fram að þegar við tókum þessi mál sérstaklega til umræðu árið 2009 og spurningarnar voru nánast þær sömu og núna þá greip hópurinn, sem ráðherra batt miklar vonir við að mundi bráðlega koma með einhverja niðurstöðu, til þess ráðs að fá bráðabirgðahúsnæði sem ég vil varla kalla svo. Það gengur ekkert upp að hafa safnið í loftskeytastöðinni, húsnæðið er svo óheppilegt og óaðgengilegt að ég vil ekki kalla þetta lausn.

Ég tel heldur ekki hægt að vísa í að það eigi að koma upp einhverri heimasíðu. Við erum ekki að tala um neitt af því tagi, við erum að tala um höfuðsafn Íslands. Það verður að finna húsnæði fyrir safnið, annaðhvort gott húsnæði, sem fyrir er og búið er að byggja og er hægt að endurnýta fyrir þetta safn, eða byggja nýtt til framtíðar.

Af því að við höfum litla peninga umleikis og ætlum að fara í aðrar byggingar eins og byggingu fangelsis, ég nefni það sérstaklega, ég er mikill stuðningsmaður þess, þykir mér rétt að skoða hvort við getum fundið húsnæði sem risið er fyrir þetta safn. Ég vil bara brýna fyrir hæstv. ráðherra að höggva á þennan hnút, koma safninu fyrir í húsnæði þar sem hægt er að sýna þessa gripi og skólabörn, Íslendingar og ferðamenn geta komið þangað og við getum stolt sýnt gripi okkar og hvernig náttúran hefur þróast hér í gegnum árhundruðin og árþúsundin.

Þessi mál eru okkur til skammar eins og þau eru í dag. Ég vil bara brýna (Forseti hringir.) fyrir hæstv. ráðherra að koma þessum málum ofar á sitt borð.