140. löggjafarþing — 31. fundur,  5. des. 2011.

starfsskilyrði í æskulýðsstarfi.

326. mál
[16:58]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (S):

Frú forseti. Á sínum tíma eftir nokkra umræðu voru samþykkt æskulýðslög, fóru í gegn á tveimur þingum, minnir mig, eftir þó nokkra umræðu því að menn eru auðvitað meðvitaðir um þá ábyrgð sem fylgir því að halda uppi og úti æskulýðsstarfi í landinu. Einna helst var til umræðu 10. gr. laganna frá 2007, um starfsskilyrði þeirra sem starfa og hafa umsjón með börnum í æskulýðsstarfi.

Ég legg fram eftirfarandi spurningu: Hvernig hefur ráðuneytið fylgt eftir ákvæðum IV. kafla gildandi æskulýðslaga, nr. 70/ 2007, um starfsskilyrði þeirra sem starfa með eða hafa umsjón með börnum og ungmennum í æskulýðsstarfi?

Nú er komin fjögurra ára reynsla á þau lög og því væri fróðlegt að vita hvernig ráðuneytið hefur fylgt eftir því ákvæði, þ.e. um starfsskilyrði þeirra sem starfa með börnum og ungmennum, og þá sérstaklega undir 18 ára aldri, því að svolítið var tekist á um það hvort ætti að leyfa þeim sem hafa fengið refsidóm vegna ávana- og fíkniefna að starfa með börnum og ungmennum undir 18 ára aldri. Tekið var fyrir það og sama gildir um þá sem hafa brotið af sér vegna ákvæða XXII. kafla almennra hegningarlaga.

Ég vil gjarnan fyrir forvitnissakir vita hvernig ráðuneytið hefur fylgt þessum ákvæðum æskulýðslaga eftir og hvernig æskulýðsfélög og samtök hafa staðið undir því ákvæði. Markmiðið með þessu var fyrst og fremst að reyna að vernda börnin þannig að þau gætu með sínum kostum og göllum fengið að njóta þeirra hæfileika sem þau hafa yfir að ráða innan æskulýðsstarfsins. Það skiptir miklu máli að þau geti notið sín og á eigin forsendum, en ekki að eitthvað annað og þá sérstaklega eitthvað sem gæti verið alvarlegt sé að trufla þau.