140. löggjafarþing — 32. fundur,  6. des. 2011.

forsendur fjárlaga og þingskjöl.

[11:48]
Horfa

Lilja Mósesdóttir (U):

Virðulegur forseti. Ég er komin hingað upp til að taka undir með hv. þm. Atla Gíslasyni um nauðsyn þess að fresta umræðu um fjárlagafrumvarpið. Við hv. þm. Atli Gíslason getum ekki tekið þátt í umræðunni fyrr en breytingartillögur okkar hafa verið samþykktar með afbrigðum og því finnst okkur afar óeðlilegt að hefja umræðuna. Ég skora enn og aftur á hæstv. forseta að fresta umræðunni þar til allar breytingartillögur eru komnar fram.

Ég vil líka nota tækifærið og kvarta yfir hraðanum sem er á fjárlagafrumvarpinu í gegnum þingið. Þó svo að starfsmenn séu allir af vilja gerðir og tilbúnir að vinna hér dag og nótt til að tryggja að stjórnarandstæðingar geti lagt fram breytingartillögur er bara ekki nógu langur tími frá því að starfsmennirnir voru í fullu starfi við að sinna meiri hlutanum (Forseti hringir.) og þar til umræða hefst um fjárlagafrumvarpið, því miður.