forsendur fjárlaga og þingskjöl.
Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að fara að þræta um þingsköpin og ég ætla alls ekki að taka þátt í pólitískum leik. Ég vil höfða til hæstv. forseta. Fyrir liggur vel rökstudd beiðni ýmissa þingmanna um að fresta umræðu um fjárlög vegna þess að í fyrsta lagi vantar mat á tekjuáætlun frá efnahags- og viðskiptanefnd, í öðru lagi hafa borist upplýsingar varðandi stöðuna í kjarasamningum og í þriðja lagi liggur fyrir beiðni frá hv. þm. Lilju Mósesdóttur og Atla Gíslasyni um að fresta umræðu um fjárlög vegna þess að breytingartillögur þeirra eru ekki enn komnar fram.
Fyrir liggur, og við höfum rætt það, að á fimmtudaginn stendur til að hafa heilan þingdag þar sem mælt verður fyrir 1. umræðu-málum frá ríkisstjórninni til að koma þeim til nefndar.
Til þess að við vöndum okkur öll og gætum virðingar Alþingis, er ekki betra (Forseti hringir.) að hæstv. forseti geri stutt hlé, kalli okkur þingflokksformenn saman og við komum okkur saman um að fresta fjárlagaumræðunni og taka fyrir 1. umræðu-málin þannig að sá dagur nýtist vel og hægt verði að vinna betur í fjárlagafrumvarpinu?