forsendur fjárlaga og þingskjöl.
Virðulegi forseti. Það er á ábyrgð þingsins að senda frá sér vandaða löggjöf. Það er það sem við þurfum helst að passa upp á á Alþingi. Það er enginn að tala um að við ætlum ekki að afgreiða fjárlög.
Hv. þm. Árni Þór Sigurðsson nefndi að ég hefði samþykkt breytingar á þingsköpum. Ég var reyndar fjarverandi, minnir mig, ég get farið yfir það á eftir, mér gafst ekki tími til þess áðan.
Mig langar til að lesa orðrétt upp úr 13. gr., 5. tölulið, sem fjallar um fjárlaganefnd, með leyfi forseta:
„Nefndin veitir efnahags- og viðskiptanefnd umsögn um þingmál er varða tekjuhlið fjárlaga.“
Það er ekkert ákvæði sem segir að efnahags- og viðskiptanefnd eigi að veita umsögn um tekjuhlið fjárlaga og ég get ekki betur séð en að þetta ákvæði sé bara markleysa, (Forseti hringir.) að hér hafi ekki verið vandað nægilega til verka. (Forseti hringir.) Þess vegna — og ég ætla að mér að virða tímamörkin … (Forseti hringir.)
(Forseti (ÁRJ): Tíminn er liðinn.)
… eins og ég get, frú forseti — er ekkert (Forseti hringir.) álit frá efnahags- og viðskiptanefnd.