140. löggjafarþing — 32. fundur,  6. des. 2011.

fjárlög 2012.

1. mál
[16:06]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta fjárln. (Höskuldur Þórhallsson) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil fyrst leiðrétta hv. þm. Ásbjörn Óttarsson. Víst hafa verið lagðar fram tillögur um að rétta hlut heilbrigðisstofnana á landsbyggðinni. Ég geri mér vonir um að hann skilji þær. Ef þær eru ekki í þessu skjali hafa verið gerð mistök. Ég útlistaði þær mjög greinilega við 2. umr. og lagði þar til að 1,3 milljarðar yrðu settir í að bæta upp það sem tekið var umfram 4,7% fyrir ári síðan og að niðurskurðurinn yrði flatur á þær stofnanir.

Ég áttaði mig á því áðan að á því breytingaskjali sem lagt var fram voru mistök gerð varðandi almannatryggingar og atvinnuleysisbætur og ef í ljós koma fleiri mistök verður væntanlega bætt úr því fyrir atkvæðagreiðsluna á morgun. En hv. þingmaður veit vel að þar voru boðaðar tillögur, þær voru útlistaðar mjög ítarlega.

Það er rangt hjá hv. þingmanni að ekki sé hægt að fara í þær tillögur sem Framsóknarflokkurinn hefur lagt fram um séreignarsparnaðinn. Hann segir sjálfur að þar sé aukið flækjustig. Ég get tekið undir það, ég hef gert það ítrekað úr ræðustól, en ég hafna því alfarið að það sé ekki framkvæmanlegt.

Okkur greinir á um hvernig fara eigi að með safnliði, ég kem kannski aðeins betur inn á það í seinna andsvari mínu, en telur hv. þingmaður að sú breyting sem orðið hefur varðandi (Forseti hringir.) safnliði sé faglegri nú en hún var í fjárlaganefnd?