fjárlög 2012.
Frú forseti. Ég verð að fara inn í nóttina skuldugur við Framsóknarflokkinn. Það bara eru örlög mín í dag og ég verð að taka því.
Það er að sjálfsögðu ekkert réttlætanlegra að fjármagna heiðurslaun listamanna frekar en heilbrigðisstofnanir eða menntamál, að sjálfsögðu ekki, en sem betur fer eru fleiri liðir í fjárlagafrumvarpinu en eingöngu heilbrigðis- og menntamál. Eins og fram hefur komið voru þarna á heiðurslaunalistanum tvö sæti sem höfðu ekki verið fyllt í nokkur ár og var ákveðið að fylla annað þeirra. Það tókst með ákveðni en því miður var nefndin ekki sammála um það og ég hefði gjarnan vilja sjá nefndina sammála um það.