140. löggjafarþing — 32. fundur,  6. des. 2011.

fjárlög 2012.

1. mál
[16:45]
Horfa

Þór Saari (Hr) (andsvar):

Frú forseti. Mér er kunnugt um að tillögur hv. þingmanns við 2. umr. sneru einmitt að því að draga einnig til baka niðurskurðinn frá síðasta ári. Við studdum þær tillögur. Ég fagna því ef þær koma fram aftur. Þeirra sér ekki stað í skjölunum, því miður, eins og virðist vera vegna mistaka, en ef þær líta dagsins ljós er það bara hið besta mál.

Ég tel að hv. þm. Ásbjörn Óttarsson hafi ef til vill byggt mat sitt á því sem stendur eða stendur ekki í þingskjölunum. Mér er hins vegar kunnugt um að þingmaðurinn Höskuldur Þórhallsson hefur áhuga á að leggja þær tillögur fram og það væri gott mál. Vonandi koma þær hér inn í þingið því að við höfum alltaf talað gegn niðurskurði í heilbrigðismálum og allar breytingar sem eru í öfuga átt við það eru fagnaðarefni og við munum styðja þær. Því róttækari sem þær eru, því betri. Ég hóf mál mitt áðan á því að tala um að illa væri staðið að umræðunni um fjárlagagerðina vegna tímaskorts og það virðist vera raunin (Forseti hringir.) og það þarf að verða bót á því í framtíðinni líka.