140. löggjafarþing — 32. fundur,  6. des. 2011.

fjárlög 2012.

1. mál
[16:48]
Horfa

efnahags- og viðskiptaráðherra (Árni Páll Árnason) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég vil fyrst nefna að það er gott að við erum komin þetta langt með fjárlagavinnuna. Það er mikilvægt að loka fjárlögum og ánægjulegt að sjá að okkur ber ekki óþægilega mikið af leið í því verkefni. Það skiptir miklu máli að halda vel utan um ríkisfjármálin og tryggja aga í ríkisútgjöldum. Við eigum öll mikið undir því að sú vegferð takist sem við erum á og miðar að því að ná jöfnuði í ríkisfjármálum 2014. Á því veltur efnahagslegur stöðugleiki og fjármögnunarkjör heimila og fyrirtækja þegar fram í sækir.

Við þessa umræðu vildi ég aðeins gera að umtalsefni fjárveitingar til Fjármálaeftirlitsins vegna almennrar opinberrar umræðu sem orðið hefur um þær. Fjárlaganefnd gerir breytingartillögu um hækkun fjárveitinga til Fjármálaeftirlitsins til samræmis við rekstraráætlun eftirlitsins og fjallar í skýringum við þá breytingartillögu um hana með eftirfarandi orðum:

„Hækkun fjárheimildarinnar hefur því ekki áhrif á afkomu ríkissjóðs. Á hitt er að líta að kostnaður við rekstur eftirlitsins hefur aukist umtalsvert síðan 2007. Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis var bent á veilur í opinberu eftirliti með starfsemi fjármálastofnana sem brýnt var að bregðast við. Þær veilur voru að hluta til fjársvelti en sneru einnig að viðhorfinu til hlutverks eftirlitsins. Efnahags- og viðskiptaráðherra ber samkvæmt fyrrgreindum lögum“ — um Fjármálaeftirlitið — „að leggja fyrir Alþingi frumvarp til laga um fjárhæð eftirlitsgjalds til Fjármálaeftirlitsins og skal það byggt á skýrslu eftirlitsins ásamt áliti samráðsnefndar eftirlitsskyldra aðila. Meiri hluti fjárlaganefndar undirstrikar að Alþingi tekur síðan ákvörðun um fjárheimildir til Fjármálaeftirlitsins enda fer það bæði með löggjafarvald og fjárstjórnarvald og það vald verður ekki útvistað til einstakra stofnana eða embætta þótt sjálfstæð séu í störfum sínum. Meiri hlutinn telur ástæðu til að beina því til efnahags- og viðskiptaráðherra að fram fari óháð mat á starfsemi Fjármálaeftirlitsins í ljósi þeirrar miklu hækkunar sem orðið hefur á fjárheimildum þess undanfarin ár og í kjölfarið verði lög um starfsemina endurskoðuð gefist tilefni til þess.“

Af þessu tilefni vil ég aðeins fjalla um bakgrunn hækkaðra fjárframlaga til Fjármálaeftirlitsins. Þau eiga rætur í úttekt sem gerð hefur verið á Fjármálaeftirlitinu, verklagi þar og getu þess til að takast á við hlutverk sitt. Fyrst ber þar að nefna mat í skýrslu Kaarlos Jännäris sem birt var á fyrri hluta árs 2009 og leiddi til umtalsverðra breytinga á löggjöf um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi og hækkandi fjárframlaga til Fjármálaeftirlitsins til að bæta úr ágöllum í framkvæmd eftirlitsins. Framlögin hafa síðan hækkað ár frá ári í samræmi við úrbótaáætlun sem gerð hefur verið. Þær tillögur sem liggja til grundvallar rekstraráætlun fyrir næsta ár byggja á úttekt fransks sérfræðings, Pierre-Yves Thoravals, sem kom hér fyrri hluta þessa árs og gerði úttekt á Fjármálaeftirlitinu að beiðni stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Það liggur fyrir að auka þarf getu eftirlitsins til að sinna hlutverki sínu. Það þarf að tryggja að eftirlitið fari fram með réttum hætti. og beinist að þeim atriðum sem mestu skipta.

Um ágalla í framkvæmd Fjármálaeftirlitsins er ítarlega fjallað í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Það er mjög mikilvægt að þingmenn missi ekki sjónar á því markmiði að bæta úr þeim ágöllum og tryggja að við höfum fjármálaeftirlit sem stenst samjöfnuð við það sem best gerist í nágrannalöndum okkar. Í skýrslu sérfræðingsins Thoravals kemur fram að einungis í helmingi tilvika gerir Fjármálaeftirlitið það. Það setur okkur þingmönnum öllum þungar byrðar á herðar og við getum ekki vikist undan þeim.

Ég hef á þessum forsendum ekki talið eðlilegt að draga úr Fjármálaeftirlitinu hvað varðar uppbyggingaráætlun þess. Ég skrifaði ásamt forsætisráðherra og fjármálaráðherra undir viljayfirlýsingu til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins 16. ágúst sl. þar sem skýrt var tekið fram að við skuldbyndum okkur til að afla Fjármálaeftirlitinu fjármuna sem dygðu til þess að það stæðist alþjóðlegar kröfur og alþjóðlegan samjöfnuð. Við þá undirskrift mína stend ég.

Verklagið sem Fjármálaeftirlitið leggur til er í fullu samræmi við úrbótaáætlunina frá hinum franska sérfræðingi. Vegna athugasemda sem fram komu um aukningu útgjaldanna beindi ég því til Fjármálaeftirlitsins að meta hvort það væru einhverjir frekari hagræðingarkostir, hvort hægt væri að taka viðbótarsnúning. Þess ber þó að geta að upphafleg rekstraráætlun Fjármálaeftirlitsins gerði ráð fyrir 3% niðurskurði og aðhaldi eins og öllum stofnunum var uppálagt að gera fyrir árið 2012. Stofnunin hefur farið yfir áætlanir sínar og komist að niðurstöðu um að hún geti lækkað rekstraráætlunina fyrir næsta ár um 115 milljónir. Auðvitað felur það það í sér að uppbyggingaráformunum seinkar að einhverju leyti og það hægir á því sem ella hefði verið unnt að gera. Að hluta til er hér um að ræða verkefni sem, eins og ég segi, lúta að mestu leyti að úrbótum á getu eftirlitsins til að sinna verkefnum sínum, en það er líka verið að ræða ný verkefni sem Alþingi hefur falið eftirlitinu að sinna, eins og eftirlit með skilanefndum og slitastjórnum sem er mjög brýnt að Fjármálaeftirlitið fari í af fullri alvöru.

Ég hef því viljað að það væri fullkomlega tryggt að Fjármálaeftirlitið fengi þær fjárveitingar sem fælust í niðurstöðu hins endurskoðaða mats eftirlitsins fyrir rekstrarfjárþörf á árinu 2012. Ástæðan er einfaldlega sú að ég sé engin efnisrök fyrir öðru.

Vissulega má gagnrýna með hvaða hætti þetta mál ber að á þinginu og þá sérstaklega að það frumvarp sem mér ber lögum samkvæmt að flytja, um álagningu eftirlitsgjaldsins, hefur ekki enn komið til þinglegrar meðferðar. Það hefur verið lagt fram á Alþingi en bíður þess að ég fái að mæla fyrir því. Auðvitað er það ámælisvert af löggjafarvaldinu, og fjárveitingavaldinu þar með, gefist ekki færi á að skoða skýringar Fjármálaeftirlitsins, sannreyna þær og þrautprófa eins og gert hefur verið á undanförnum árum þegar slíkt frumvarp hefur verið lagt fram á haustþingi. Það er mjög sérkennilegt að fjárlaganefnd skuli núna afmarka rammann fyrir fjárveitingar Fjármálaeftirlitsins áður en efnahags- og viðskiptanefnd svo mikið sem fær frumvarpið um rekstrarfjárþörf stofnunarinnar til meðferðar.

Hér er öllu snúið á haus og ástæðan fyrir því er mjög einföld. Hún er sú að fjármálaráðuneytið skirrtist við að afgreiða kostnaðarmat á þessu frumvarpi þannig að mér var ekki mögulegt að rækja hér starfsskyldur mínar (Gripið fram í.) og leggja það fram. Það var óskað eftir kostnaðarmati 1. nóvember. Fjármálaráðuneytið beið einfaldlega með að afgreiða beiðnina og kom þar með í veg fyrir að hægt væri að leggja þetta frumvarp fram og að það fengi efnislega umræðu í þinginu. Þetta er óásættanleg meðferð á beiðni um að láta fara fram kostnaðarmat á stjórnarfrumvarpi. Það er óásættanlegt að fjármálaráðuneytið hafi svona efnisleg áhrif á möguleika löggjafans og fjárveitingavaldsins til að fjalla um mál sem hafa í för með sér útgjöld fyrir ríkissjóð. Það hlýtur að vera hægt að ætlast til þess að mál fái eðlilega þinglega meðferð.

Ég tek eftir því að meiri hluti fjárlaganefndar gagnrýnir að ekki sé búið að sýna fram á þörfina með fullnægjandi hætti. Það hefði örugglega verið búið ef málið hefði verið komið inn í þingið og eins og venja er á haustþingi búið að kalla eftir gestum, fá samráðsnefnd eftirlitsskyldra aðila í heimsókn o.s.frv.

Virðulegi forseti. Ég mun taka alvarlega þær ábendingar sem meiri hluti fjárlaganefndar setur fram um mikilvægi þess að endurmeta löggjöfina. Við erum með skýrslu um úrbætur á umgjörð fjármálamarkaðarins í undirbúningi. Við munum í framhaldinu taka til athugunar stofnanaumgjörð eftirlits á fjármálamarkaði. Þó að fram hafi farið óháð mat á sínum tíma á fjármálaeftirliti á Íslandi og þó að það hafi farið fram annað óháð mat með skýrslu hins franska sérfræðings á útmánuðum er von á enn einu óháðu mati. Kaarlo Jännäri, fyrrverandi forstjóri finnska fjármálaeftirlitsins, sem kom hér að málum í upphafi árs 2009 verður okkur til aðstoðar í frekari úrvinnslu þessara mála. Ég tel einsýnt að þá sé æskilegt að fara yfir þetta mál og um leið yfir löggjafarumgjörðina utan um fjárveitingar til Fjármálaeftirlitsins. Þá verður komið í veg fyrir að þetta verði togstreitumál milli ráðuneyta í framtíðinni.

Það er hins vegar mjög mikilvægt að hafa í huga að eitt af grundvallarviðmiðununum um sjálfstæði fjármálaeftirlits, sem fjármálaeftirlit þarf að uppfylla samkvæmt Basel-viðmiðum um gæði fjármálaeftirlits, er að þau séu sjálfstæð í störfum sínum og að fjárveitingar til þeirra séu á faglegum grunni. Ég held að það sé sjálfsagt að fara yfir það fyrirkomulag sem nú er um fjárveitingar til Fjármálaeftirlitisins en ég legg áherslu á að við búum þannig um íslenskt fjármálaeftirlit að það þoli samjöfnuð við það sem best gerist.

Ég vil líka segja, vegna umræðunnar sem hefur verið í fjölmiðlum upp á síðkastið, að ég ætla það engum að vilja Fjármálaeftirlitinu á Íslandi illt, síst á þessum tímum. Ég held að við verðum að gæta þess að standa nú vörð um Fjármálaeftirlitið. Það skiptir mjög miklu máli að við tryggjum því fullnægjandi fjárveitingar, bæði til að því gefist færi á að ljúka í tíma þeim rannsóknum sem nú standa yfir vegna atburða sem urðu í aðdraganda hrunsins sem og til að bæta úr augljósum ágöllum sem komið hafa fram á framkvæmd eftirlitsins þannig að við vísum veginn til framtíðar. Ísland þarf á trúverðugu og öflugu fjármálaeftirliti að halda til framtíðar. Mikilvæg forsenda þess að við getum komist áfram í afnámi gjaldeyrishafta og aukið tiltrú á íslenskt fjármálakerfi er að Fjármálaeftirlitið njóti trausts og trúnaðar og að það sé víðtækur skilningur á því á alþjóðavettvangi að Fjármálaeftirlitið vinni í samræmi við alþjóðlega skilmála eins og þeir gerast bestir.