140. löggjafarþing — 32. fundur,  6. des. 2011.

fjárlög 2012.

1. mál
[18:07]
Horfa

fjármálaráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég geri eingöngu athugasemd við eitt í málflutningi hv. þingmanns og það er það sem hann sagði um fjárlagafrumvarpið sjálft og framsetningu þess. Menn geta að sjálfsögðu haft sinn smekk á því og ég ætla ekki að deila um smekk við hv. þingmann, hann gaf frumvarpinu falleinkunn, eins og hann orðaði það, taldi töflur illa upp settar og greinargerð óskýra. En einu uni ég ekki og það eru aðdróttanir hv. þingmanns um að þetta sé viljandi illa gert. Það mátti skilja hv. þingmann þannig þegar hann spurði hvort þetta væri viljandi til þess að gera frumvarpið sem illlæsilegast fyrir aðra en innvígða.

Ég mótmæli fyrir hönd þess góða starfsfólks í fjármálaráðuneytinu og öðrum ráðuneytum sem leggur nótt við dag frá því um miðjan ágúst og fram undir lok september til að ljúka þeirri miklu vinnu sem eru skriftir, frágangur greinargerðar, töflugerð og önnur upplýsingavinnsla með aðstoð úr öðrum ráðuneytum, einkum hinum stærri, sem sjálf leggja hönd á plóg við að semja skýringar varðandi viðkomandi málasvið. Ég er algerlega ósammála því að fjárlagafrumvarpið og fylgirit þess séu til samans ekki góð gögn til þess að átta sig á þessu máli. Fjárlagafrumvarpið eru 484 blaðsíður, þar af 264 blaðsíðna greinargerð þar sem í rækilegu máli eru m.a. útlistaðar þær aðhaldsaðgerðir sem hv. þingmaður gerði sérstaklega að umtalsefni, frá og með bls. 214, þar sem byrjað er að fjalla um útgjaldahlið frumvarpsins, útgjaldabreytingar, útgjaldabreytingar 2012 eftir málaflokkum, aðhaldsaðgerðirnar flokkaðar niður í rekstrargjöld, tilfærslur og viðhalds- og stofnkostnað og samanburðartöflur sem taka til ríkisreiknings frá 2009 til og með fjárlagafrumvarpinu 2012 o.s.frv.

Á heimasíðu fjármálaráðuneytisins eru viðbótargögn sem hv. þingmönnum hefur kannski láðst að skoða, m.a. sú kynning sem fjárlaganefnd, fjölmiðlar, aðilar vinnumarkaðarins og fleiri fá þegar (Forseti hringir.) fjárlagafrumvarpið kemur fram. Þessi gögn eru öll aðgengileg á heimasíðu ráðuneytisins. Það er allt gert sem hægt er af hálfu ráðuneytisins til þess að gera (Forseti hringir.) þetta sem læsilegast og skiljanlegast og auðvelda mönnum að (Forseti hringir.) átta sig á inntaki málsins.