fjárlög 2012.
Frú forseti. Ég verð að segja að það eru mér mikil vonbrigði ef hv. þingmaður hefur virkilega þessa skoðun og sérstaklega ef hann er enn að velta því fyrir sér hvort það sé einhver ásetningur eða vilji að hafa fjárlagafrumvarpið, eitt mikilvægasta þingmál hvers þings, einhvern veginn þannig útbúið að það sé erfitt að átta sig á inntaki þess. Það er alveg svakalega gróf aðdróttun til handa þeim sem ábyrgð bera á málinu og ég tek það mjög óstinnt upp. Ég ber að sjálfsögðu þá ábyrgð og það er rétt að eiga þá þau orðaskipti við mig, en auðvitað mættu allir vita að ég er ekki einn að verki hér. Það eru tugir manna sem leggja gríðarlega vinnu á sig við að reyna að gera einmitt hið gagnstæða, að reifa þetta sem best og útlista á hverju frumvarpið er byggt, bera það saman við fyrri ár, brjóta það niður í málaflokka, aðhaldsmarkmiðin eru flokkuð annars vegar eftir ráðuneytum, hins vegar eftir málaflokkum. Það er farið yfir rekstur, tilfærslur, stofnkostnað einmitt til þess að reyna að auðvelda fólki að bera þetta saman á mismunandi vegu.
Það kann að valda einhverjum misskilningi hvernig aðhaldsmarkmiðin eru útfærð og það mætti kannski reyna að fara í alveg sérstaka ritgerð um það mál. Það sést m.a. á fyrirspurnum frá hv. þingmönnum að þeir hafa ekki allir áttað sig á því. En það er þannig gert í grófum dráttum að fyrst eru teknir frá þeir liðir sem ekki geta eðli málsins samkvæmt sætt aðhaldi, eru bundnir eða eru áætlun og eru óvissir, eins og vaxtagjöld ríkissjóðs, tapaðar skattkröfur og annað því um líkt. Síðan er allt sem er sambærilegt tekið og grunnur fjárlaganna í ár færður niður um 3% í rekstri, 1,5% í velferðarútgjöldum, en síðan tekur það auðvitað verðlagsuppfærslu og uppfærslu vegna kjarasamninga. Það kann að rugla suma þingmenn í ríminu að krónutölurnar eru þar af leiðandi hærri í frumvarpi ársins 2012 en þær eru í fjárlögum ársins 2011 þrátt fyrir aðhaldsmarkmiðin (Forseti hringir.) vegna þess að þær hafa síðan tekið verðbótum og reiknað er með launum, gengisbreytingum og öðrum þáttum. Það er allt saman reynt að útskýra eins rækilega (Forseti hringir.) og mögulegt er í þeim textum sem hér er að finna.