140. löggjafarþing — 32. fundur,  6. des. 2011.

fjárlög 2012.

1. mál
[23:00]
Horfa

Björn Valur Gíslason (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Varðandi landsfundarályktun Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs þar sem fjallað er um frekari niðurskurð og áhrif hans var staðan sú að fjárlagafrumvarpið lá þá fyrir þinginu með tiltekinni aðhaldskröfu sem hefur nú verið dregið verulega úr. Þá var meiningin og innihald tillögunnar sem var samþykkt á landsfundi Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs að frekari niðurskurður mundi leiða til alvarlegri atburða og var átt við frekari aðgerðir en þá lágu fyrir í frumvarpinu, þ.e. 1,5% sem lagt var upp með.

Nú hefur aldeilis verið dregið úr því þannig að ég tel að þær aðgerðir og sú vinna sem stjórnarliðar hafa lagt fram og þær tillögur sem lagðar hafa verið fyrir þingið til að greiða atkvæði um á morgun séu mjög í anda þess sem var rætt á landsfundi Vinstri grænna núna í haust norður á Akureyri og að það hafi náð að skila sér vel inn í fjárlagagerðina varðandi heilbrigðismálin.

Varðandi hitt málið, þ.e. endurhæfingardeild á Sauðárkróki sem hefur verið rædd hér talsvert í dag og við þingmenn höfum fengið fjölmarga tölvupósta um og ábendingar um að ganga ekki of langt í því að skerða framlög til sjúkrastofnana, fullyrði ég og það má þá bara hafa mig fyrir því að ekki stendur til og verður ekki gert í tengslum við fjárlagafrumvarpið að loka endurhæfingardeildinni á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki. Þá fullvissu hef ég fengið staðfesta og ítrekaða og ég hef reynt að svara einhverjum póstum í þá veru að ekkert annað liggi fyrir í fyrirætlunum ríkisstjórnarinnar eða Alþingis við afgreiðslu fjárlagafrumvarpsins á morgun.