140. löggjafarþing — 32. fundur,  6. des. 2011.

fjárlög 2012.

1. mál
[23:07]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Kristján Þór Júlíusson) (S) (andsvar):

Forseti. Það ber nýrra við ef hv. þm. Björn Valur Gíslason er orðinn skoðanalaus í þessum stól. (BVG: Þetta voru mismæli.) Þetta voru mismæli, segir hv. þingmaður. Það hlaut að vera, það lá að, ég trúi því ekki að hv. þingmaður hafi ekki skoðun á þessari tillögu formanns atvinnuveganefndar.

Það er rétt sem hv. þingmaður segir, við rekum ríkissjóð fyrir lánsfé og þess vegna býst ég við því að hv. varaformaður fjárlaganefndar taki ekki þessari tillögu formanns atvinnuveganefndar með neinum sérstökum húrrahrópum. Mér þætti vænt um að hann myndaði sér skoðun á þessari tillögu í hléinu sem hann fær.

Ég tók eftir því að hv. þingmaður svaraði ekki spurningu minni sem lýtur að því hvenær við ætlum að taka nýtt fangelsi í notkun. Mér finnst það grundvallarspurning í þessu máli, líka vegna þeirrar ákvörðunar sem verið er að taka með afgreiðslu þeirrar tillögu sem liggur fyrir. Hann þarf að geta svarað því um leið hvenær við megum vænta þess að umrædd bygging verði tekin í notkun.

Aðeins örstutt um þann brodd sem felst í athugasemdinni um forseta ASÍ. Það sem liggur í orðum okkar sjálfstæðismanna þegar við lýsum áhyggjum okkar af þessari stöðu er að þar talar fulltrúi rúmlega 100 þús. manna hreyfingar og maður þarf ekki endilega að vera sammála í einu og öllu því sem þar kemur fram. Við höfum áhyggjur af því hvað gæti tekið við ef þau orð ganga eftir sem forsvarsmaður þessarar fjöldahreyfingar lét falla, hvernig staðan yrði á almennum vinnumarkaði og hvaða áhrif það hefði á það verkefni sem við höfum verið að sýsla með síðustu vikur, (Forseti hringir.) þ.e. fjárlagagerðina og fjárlög íslenska ríkisins.