140. löggjafarþing — 33. fundur,  7. des. 2011.

fjárlög 2012.

1. mál
[17:18]
Horfa

Atli Gíslason (U):

Frú forseti. Eins og margoft hefur komið fram eru þær kröfur sem gerðar eru á hendur heilbrigðisstofnunum, sérstaklega á landsbyggðinni, ekki lengur hagræðingarkröfur. Það verður ekki meira hagrætt, heldur verður skorin niður þjónusta. Það hefur þegar gerst. Ég nefndi í ræðu minni í gær búseturöskun samkvæmt skýrslu um sjúkrahúsið á Sauðárkróki og ég nefndi að það ætti að leggja niður heilsugæslustöðina á Hellu.

Ég nefni líka að þessi niðurskurður í heilbrigðisþjónustunni hefur leitt til þess að þær uppsagnir sem urðu á síðasta ári og þar áður bitna að 80% leyti á konum, og að næstum því 80% leyti á landsbyggðinni. Það er óþolandi.