fjárlög 2012.
Frú forseti. Mér þykir að sönnu vænt um það traust sem falið er í þessari tillögu, að það sé alls ekki þörf á að gera ráð fyrir neinum ófyrirséðum útgjöldum á næsta ári sem hlyti að fela í sér að fjárlögin væru traust og hefðu séð fyrir eiginlega öllum hlutum, bæði fyrirsjáanlegum og ófyrirsjáanlegum. Svo er þó ekki.
Engu að síður var það mat okkar og niðurstaða meiri hlutans að það væri óhætt að færa þennan liður niður að þeim mörkum sem hann stendur hér í en miðað við reynslu okkar frá tveimur undanförnum árum getur komið sér vel að eiga óskiptan varasjóð. Nægir þar að nefna náttúruhamfarirnar sem við höfum glímt við tvö ár í röð og hafa kostað frá 800 og upp í 1.200 millj. kr. hvort ár um sig. Þarna er þá líka möguleiki á að mæta ófyrirséðum útgjöldum, gengis- og launabreytingum eða öðru slíku. Ég get ekki mælt með því að taka þennan lið algerlega út úr frumvarpinu þótt vissulega megi ræða og rökræða hversu stór þessi varasjóður þurfi að vera. En ég þakka vissulega traustið.