fjárlög 2012.
Forseti. Afstaða okkar sjálfstæðismanna til þeirra tillagna sem meiri hluti stjórnarinnar hefur samþykkt liggur mjög skýr fyrir. Hér er tillaga sem er allnokkuð óútfærð svo ekki sé meira sagt, sérstaklega 3. töluliður í henni og við treystum okkur ekki til að taka undir þá tillögugerð sem hér liggur fyrir. Ég vil í þessu sambandi minna á þær hugmyndir sem uppi hafa verið meðal allra flokka í fjárlaganefnd um að það verklag sem viðhaft hefur verið við framkvæmd þessa niðurskurðar gangi ekki upp. Það liggur í raun fyrir sameiginlegur skilningur innan fjárlaganefndar á því að eftir sé vinna við yfirferð ákveðinna þátta sem lúta að þeirri tillögugerð sem meiri hluti stjórnarinnar hefur samþykkt. Ég heiti á stjórnarliða að fara til þess verks með mjög opnum huga á komandi ári með það fyrir augum (Forseti hringir.) að draga úr þeim skaða sem þessar tillögur munu valda.