fjárlög 2012.
Virðulegi forseti. Við erum fámenn þjóð í stóru landi þar sem náttúran er stórbrotin og býður af sér miklar hættur á tíðum. Við höfum oft upplifað það með þeim náttúruhamförum sem yfir okkur hafa dunið.
Hér er stigið mjög mikilvægt skref í að treysta öryggi borganna og ekki síður þeirra ferðamanna sem heimsækja landið. Eftir þær breytingum sem þessir fjármunir munu gera mögulegar verður hægt að senda aðvaranir í alla farsíma hvar sem er á landinu þar sem til þeirra næst, um einhverjar hættur sem eru yfirvofandi og greiða þannig fyrir því að fólk sé undir það búið og geti forðað sér af þeim svæðum ef þannig ber undir. Ég tel að það sé mjög mikilvægt þrátt fyrir þröngan kost að við stígum þetta skref í fjárlögum fyrir næsta ár og treystum þannig öryggi borganna og ekki síður þess aukna fjölda ferðamanna sem heimsækir landið.