140. löggjafarþing — 33. fundur,  7. des. 2011.

fjárlög 2012.

1. mál
[18:14]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Allt bendir nú til þess að við séum að afgreiða síðustu erfiðu fjárlögin í bili og að bjartari tímar sé fram undan hjá íslenskri þjóð. Þetta hefur verið erfitt, þetta hefur kostað blóð, svita og tár en við sjáum fram á betri tíð, við erum að uppskera árangur erfiðra ákvarðana. Samfélagið er að rísa og við erum að rétta úr kútnum. Sársaukafyllstu aðgerðirnar hafa verið að þurfa að skera niður í heilbrigðis- og velferðarmálum en við höfum samt staðið vörð um grunnþjónustuna. Við erum að leggja núna í meðferð fjárlaganefndar um einn milljarð til viðbótar inn í heilbrigðismálin frá því sem áður var. Við stöndum að mikilli uppbyggingu í hjúkrunarrýmum um land allt. Lagðir hafa verið um 10 milljarðar á þremur árum í þennan málaflokk á þessum erfiðu tímum. (Gripið fram í.) Þetta skulum við virða og 8 milljarðar hafa farið í að hækka bætur almannatrygginga og þar er forgangsröðin á næsta ári ef svigrúm verður til.