hækkun á kvóta Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
Virðulegi forseti. Það er rétt að spurt sé hver áhættan í þessu efni sé raunverulega. Því er til að svara að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur strangar varúðarreglur við lánveitingar sínar og fer mjög varlega í lánveitingum, hann hefur mikið og öflugt eftirlit með skilum á þeim lánum sem hann hefur veitt og hefur mjög góða sögu að því leyti. Hann á líka mjög öflugan varasjóð, m.a. mjög mikinn gullforða sem mun auðvitað reyna á áður en reynir á framlög einstakra aðildarríkja. Vanskil þjóðríkja eru sögulega mjög lítil og þau hafa ekkert aukist í yfirstandandi fjármálakreppu. Að síðustu ber auðvitað að hafa í huga að sterkustu hagkerfi heims standa að baki sjóðnum.
Ef hins vegar svo illa færi að það reyndi á að vanskil yrðu umtalsverð meðal þjóðríkja og hinn öflugi varasjóður Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eyddist upp þá tæki Ísland auðvitað á sig hlutfallslegt tjón af því eins og öll önnur lönd. En þá væri væntanlega þannig komið að heimshagkerfið stæði frammi fyrir miklum áföllum og það væri þá óumflýjanleg þátttaka Íslands í heimshagkerfinu að axla sitt í því samhengi.