opinberir háskólar.
Frú forseti. Ólíkt því sem hv. þm. Pétur H. Blöndal gerir fagna ég ekki þessu frumvarpi hér til laga um hækkun á skrásetningargjöldum þegar kemur að aðgangi að námi á háskólastigi hér á landi. Eins og hér er rætt um er verið að hækka þessa upphæð úr 45 þús. kr. í 60 þús. kr. og nú eru færð fyrir því þau rök að gjaldið hafi ekki tekið mið af breytingum á verðlagi á undangengnum árum. Ég tel samt að við þurfum að skoða þetta mál út frá stöðu stúdenta eins og hún er í dag en ekki hvernig hún var.
Ég man hvernig það var þegar gjaldið var hækkað í tíð þáverandi ríkisstjórnar úr 32 þúsundum upp í 45 þúsund, mig minnir að það hafi verið 2005, og þá ætlaði hér allt um koll að keyra. (Gripið fram í.) Það voru þingflokkar Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs og Samfylkingar sem gagnrýndu þáverandi ríkisstjórn mjög harkalega í löngum umræðum og með heilsíðublaðaauglýsingum. Menn gáfu ekkert eftir í málflutningnum á þeim tíma. Atvinnustig í landinu var þá samt gott og ungt fólk sem stundaði nám átti mjög auðvelt, a.m.k. auðveldara en í dag, með að framfleyta sjálfu sér með því að vinna hlutastarf til að standa straum af þeim kostnaði sem hlýst af því að stunda nám á háskólastigi.
Akkúrat þeir flokkar sem börðust hvað mest gegn hækkun á skrásetningargjöldunum á sínum tíma (Gripið fram í: Kalla sig velferðarstjórn.) og kalla sig velferðarstjórn beita sér núna fyrir því að hækka þessi gjöld á stúdenta á krepputímum þegar erfiðara er fyrir fólk að vinna sér inn fjármuni til að standa straum af kostnaði við menntun. Hækkunin er enn meiri en á þeim tíma sem ég nefndi þegar þingflokkar Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs og Samfylkingar mótmæltu því harðlega að álögur á stúdenta yrðu hækkaðar.
Í ljósi erfiðrar stöðu ungmenna eða stúdenta eða fólks sem vill fara í háskólanám eða er í háskólanámi langar mig að spyrja hæstv. ráðherra hvort tekið verði tillit til þessarar miklu hækkunar í framfærslugrunni Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Verður eitthvert mið tekið af því að hér er verið að auka álögur á stúdenta í landinu á sama tíma og ríkisstjórnin hvetur fólk til að fara í háskólanám? Mér finnst vera margar þversagnir þegar kemur að málum eins og þessu sem við ræðum hér. Ótrúleg stefnubreyting hefur orðið á ekki lengri tíma í málefnum háskólastúdenta hjá þingflokkum Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs og Samfylkingarinnar.
Hér er um dapurlega niðurstöðu að ræða í forgangsröðun ríkisstjórnarinnar. Ég tel að við eigum að hvetja til háskólanáms hér á landi, ekki hvað síst á erfiðum tímum, en ekki letja. Þess vegna hef ég talað fyrir því að við endurskoðum enn frekar framfærslugrunn Lánasjóðs íslenskra námsmanna og hækkum hann til muna. Staðreyndin er sú að í dag er það „betra“ fyrir fólk, hagstæðara, að vera á atvinnuleysisbótum en í námi. Slíkt er hvati sem á ekki að vera til staðar og sérstaklega ekki þegar stjórnvöld tala í orði kveðnu fyrir því að fólk fari í nám.
Hér erum við að ræða um frumvarp til laga sem endurspeglar þá forgangsröðun ríkisstjórnarinnar að auka álögur á háskólastúdenta í landinu, hækka skrásetningargjöld um þriðjung í einu vetfangi. Ég tel að þessi breyting verðskuldi að minnsta kosti þá umræðu hér að á það sé bent að þetta er forgangsröðunin. Hún er röng, að mínu viti og okkar framsóknarmanna. Ég hvet hæstv. ráðherra og menntamálanefnd þingsins til að fara sérstaklega yfir stöðu námsmanna í dag og hvort við getum gripið til einhverra frekari úrræða til að styðja við námsmenn í háskólum og jafnvel framhaldsskólum landsins, til að hvetja til náms en ekki letja, og skoða heildrænt hvort við stuðlum virkilega að því að fólk kjósi frekar að vera utan vinnumarkaðar og á bótum en að fara í merkilegt nám og stuðla þannig að hæfni og færni sinni á vinnumarkaði til lengri tíma litið.
Það er dapurlegt að þurfa að taka til máls um þetta mál hér. Ég veit að þetta er ekkert sérstakt gleðiefni fyrir hæstv. menntamálaráðherra heldur. Hæstv. ráðherra þarf að forgangsraða innan síns ráðuneytis þegar kemur að útgjaldarammanum og ég veit að það er ansi erfitt verkefni. En ef við setjum þetta í samhengi við önnur erfið mál sem ríkisstjórnin hefur reynt að ná hér í gegnum þingið, ég get nefnt sem dæmi 40 milljarða kr. á ári í vexti vegna Icesave-samkomulagsins svonefnda, verður það hjákátlegt en það skiptir samt miklu máli þegar kemur að málefnum einstaklinganna, þeirra sem þurfa að greiða þessi gjöld, þeirra sem þurfa að búa við framfærslu Lánasjóðs íslenskra námsmanna og sjá að það er einfaldlega ekki úr nægilega miklum fjármunum þar að spila. Fólk á erfitt með að ná endum saman.
Það er ekki gott ef staðan á Íslandi er slík að fólk þurfi að hverfa úr námi vegna þess að það hefur ekki efni á að stunda það. Þess vegna tel ég að við þurfum að skoða málefni námsmanna til hlítar á næstu vikum og mánuðum á Alþingi Íslendinga. Hér er um að ræða mjög mikilvægan hóp, fólk sem er í námi og/eða er að klára það, og hann er mjög mikilvægur fyrir okkur Íslendinga og íslenskt samfélag í heild til framtíðar litið. Þess vegna skiptir miklu máli að við stöndum vörð um kjör og réttindi námsmanna og höfum heildaryfirsýn að leiðarljósi í því samhengi.