breytingar á ESB og aðildarumsókn Íslands.
Virðulegi forseti. Enginn hér inni óskar þess að Evrópa hrynji, enginn hér inni hefur ekki áhyggjur af því hvernig Evrópusambandið þróast eða hvernig því vegnar. Við þurfum hins vegar að horfast í augu við raunveruleikann, hæstv. fjármálaráðherra, og raunveruleikinn þarf að ná eyrum ríkisstjórnarinnar. Ríkisstjórnin þarf að velta því fyrir sér og þar á meðal hæstv. fjármálaráðherra. Þó að hann haldi því fram í ræðustól að allir viti hvaða skoðun hann hefur á Evrópusambandinu efast ég um að nokkur viti orðið hvaða skoðun hæstv. fjármálaráðherra hefur á þessari umsókn, því að ráðherrann kemur hér upp og heldur því fram að hann vilji standa utan Evrópusambandsins og segir svo að það eigi ekki að taka neinar fljótræðislegar ákvarðanir í því hvort eigi að leggja umsóknina til hliðar eða ekki. Við vitum að það er í fyrsta lagi í mars á næsta ári sem eitthvað skýrist varðandi það samkomulag sem verið er að gera núna. Er þá ekki rétt að hæstv. fjármálaráðherra skoði aðeins hug sinn, hringi í nokkra af stuðningsmönnum sínum og velti því fyrir sér hvort ekki sé rétt að leggja þetta til hliðar, leyfa Evrópusambandinu að jafna sig, sjá hvernig það þróast, hvaða Evrópusamband það er sem hugsanlega þarf að tala við eftir nokkur ár. Ég held að hæstv. fjármálaráðherra ætti að koma upp í ræðustólinn og lýsa stuðningi við þessa skoðun, því að þá er (Forseti hringir.) hæstv. fjármálaráðherra farinn að sýna ábyrgð. Nóg hefur hæstv. fjármálaráðherra gagnrýnt hvernig menn höguðu sér í hinu svokallaða hruni þar sem ekki var (Forseti hringir.) hlustað á viðvörunarraddir.
(Forseti (ÁRJ): Forseti biður hv. þingmenn um að virða tímamörk.)