ráðstafanir í ríkisfjármálum.
Virðulegur forseti. Það er gott að við getum báðir glaðst yfir því að árangurinn varð betri í ár en hv. þingmaður hafði áhyggjur af fyrir ári. Við skulum vona að við getum líka glaðst yfir því sama að ári, en það eru viðsjár í heiminum og sannarlega getur kreppt hart og skarpt að í tekjuforsendum fjárlaganna. Þá verður bara að bregðast við því.
Það sem ég vildi um skattana segja er að ef meðallaunin eru 470 þús. kr. þá gegnir sama máli í nafnstærðum, hafi fólk 470 þús. kr. í laun á næsta ári eins og í ár. Þá greiðir það á næsta ári nærri 3 þús. kr. minna í skatt á mánuði eða uppsafnað vel á fjórða tug þúsunda minna af sömu nafnlaunum en það gerði í ár.
Hitt er svo rétt hjá hv. þingmanni að ef laun hækka almennt í landinu langt umfram verðlag, 8–9% á næsta ári með tilheyrandi kaupmáttaraukningu fyrir okkur öll, þá eykst auðvitað skattbyrðin aftur. (Forseti hringir.) En það er nú kannski ekki við öðru að búast þegar þröngt er í ríkissjóði. Sannarlega hljótum við að vona að af þessari miklu kaupmáttaraukningu verði.