ráðstafanir í ríkisfjármálum.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágæta ræðu. Þar gætti dálítillar sjálfumgleði en það er kannski eðlilegt í stöðunni. Hann talaði mikið um vandamál úti um allan heim, og það er rétt, það er mikill vandi um allan heim. Hins vegar sagði hann að hér hefði verið sérstakt vandamál varðandi hrunið — en þetta skyldi þó ekki tengjast, að vandamálin í heiminum séu bara af sama meiði og hrunið á Íslandi sem varð bara örlítið fyrr?
Hann sagði að það hefði orðið gríðarlegur viðsnúningur í rekstri ríkissjóðs og ég get tekið undir það. Það hefur orðið gríðarlegur viðsnúningur í rekstri ríkissjóðs, allir mælikvarðar eru bara ágætir nema það að staðan er náttúrlega dálítið fölsuð vegna þess að það vantar fullt af skuldbindingum, t.d. hjá lífeyrissjóði LSR, þar vantar viðbótariðgjöld upp á 4 milljarða. Það vantar, eins og nefnt hefur verið, Sparisjóð Keflavíkur o.fl. Það er eitthvað af duldum skuldbindingum þannig að hallinn er sennilega tvöfalt meiri en hann sýnist vera. Engu að síður er viðsnúningur.
En fyrir þjóðina er staðan ekki góð. Þúsundir manna hafa verið atvinnulausar í þrjú ár, þeir fara bráðum af atvinnuleysisskrá og þar með minnkar atvinnuleysið. Ekki gaman fyrir þetta fólk því að það fer á sveitarfélögin. Það fær ekki vinnu. Eða verður öryrkjar. En atvinnuleysið minnkar við það, þúsundir hafa flutt til útlanda. Það er mjög hættulegt, það er spekileki, þ.e. yfirleitt er það duglegasta fólkið sem fer út og það er mjög hættulegt fyrir þjóðina. Síðan eru fjárfestingar í lágmarki þannig að þrátt fyrir að við séum búin að ná niður verðbólgu og að það hefur orðið viðsnúningur í rekstri ríkissjóðs er staðan ekkert svo voðalega góð. Spilling vex, spilling er talin mest á Íslandi af öllum Norðurlöndunum. Ójafnrétti kynjanna hefur líka vaxið þannig að ég er ekki viss um að þegar upp er staðið sé staðan svona gífurlega góð.