ráðstafanir í ríkisfjármálum.
Herra forseti. Það er rétt að hér var undirliggjandi vandi. Hins vegar var ríkissjóður skuldlaus þannig að hann var tiltölulega vel undir það búinn að lenda í þessari kreppu, það hefði verið miklu verra ef hann hefði verið mjög skuldugur. Það má segja að það hafi verið ákveðið andvaraleysi hérna fyrir hrun, ég viðurkenni það og fellst á það, en sú lausn sem hæstv. ríkisstjórn fór út í, að skattleggja þjóðina út úr kreppunni, held ég að hafi verið mjög misráðið, verulega misráðið. Það sem ég benti á varðandi útflutning á mannauði, við erum að flytja út mannauð fyrir ekki neitt, og við sitjum uppi með atvinnulaust fólk sem varð fyrir áfalli án eigin tilverknaðar. Það er að fara af atvinnuleysisbótum og þar af leiðandi hverfur sá vandi yfir til sveitarfélaganna, persónulegur vandi er áfram hjá hverjum og einum.
Þessi leið held ég að hafi ekki verið góð. Ég held að hún hafi verið mjög slæm og að menn hefðu betur hlustað á það sem sjálfstæðismenn lögðu til, að fara út í skattalækkanir, nota séreignarsjóðina, eign ríkisins þar, og hvetja til fjárfestinga með öllum ráðum. Þessi ríkisstjórn hefur markvisst unnið gegn allri fjárfestingu með því að hækka skatta á bæði fjármagn og fjárfestingar, hækka skatta á arð og sparifé. Í rauninni er hún stöðugt að letja menn með skattlagningunni fyrir utan það hvað hún hefur gert í því að fara út í opinberar framkvæmdir og virkjanir, svo ég tali nú ekki um þau ósköp, þar sem ríkisstjórnin hefur í rauninni ekki getað sameinast um eitt einasta virkjunaráform.
Það hefur ekkert verið gert til að hvetja til fjárfestinga og auka atvinnu í landinu. Ég held að þessi stefna, að skattleggja sig út úr vandanum, hafi beðið skipbrot.