140. löggjafarþing — 36. fundur, 14. des. 2011.
Varamenn taka þingsæti.
Borist hefur bréf frá Oddnýju Harðardóttur, þingflokksformanni Samfylkingarinnar, um að Sigmundur Ernir Rúnarsson, 7. þm. Norðaust., geti ekki sótt þingfundi á næstunni vegna starfa erlendis fyrir flokk sinn. Í dag tekur sæti á Alþingi varamaður hans, Logi Már Einarsson. Hann hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa á ný.