140. löggjafarþing — 36. fundur,  14. des. 2011.

málshöfðun ESA á hendur Íslendingum vegna Icesave.

[11:58]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (Hr):

Hæstv. forseti. Við skulum hafa í huga að okkar sterkasta vopn í þessu máli er samstaða, áframhaldandi samstaða. Förum ekki í gömlu Icesave-grafirnar, látum Icesave ekki verða Tröllann fyrir þessi jól eins og hin jólin.

Ég held að mikilvægt sé líka að hafa í huga, eins og hefur komið hér fram, að Bretar og Hollendingar neituðu okkur um að fá að leggja málið fyrir dóm árið 2008 og því eigum við ekki að óttast það þó að það fari nú fyrir dóm. Ég held að mikilvægt sé að málið verði áfram í höndum efnahags- og viðskiptaráðherra. Hæstv. ráðherra hefur farið mjög vel með það og unnið mjög vel að því bæði hér heima og á erlendri grund. Það er ekki síður mikilvægt að við finnum samherja í Evrópu. Það er ljóst að Bretland hefur einangrast mjög mikið undanfarið einmitt í þessum málaflokki, fjármálunum, og margir telja að þeir hafi ekki hagað sér með ábyrgum hætti.

Það er mikilvægt að fara í fjölmiðlaherferð erlendis og nýta sér allar þær leiðir til að koma málstað okkar á framfæri en fyrst og fremst legg ég áherslu á að við bendum á að Bretar og Hollendingar hafi ekki orðið fyrir tjóni og muni ekki verða það og að þeir eigi ekki að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að gera sér neyðina sem uppi varð í Evrópu og víðar 2008 að féþúfu og að misnota sér þann aðstöðumun sem þeir hafa út af stærð sinni og forsögu. Mér finnst líka mjög mikilvægt að við pössum upp á það hvernig við tölum um málið og förum ekki út í það hver hafði rétt eða rangt fyrir sér í kringum samningana og síðan þjóðaratkvæðagreiðslurnar. Aðalatriðið er að vera í núinu og að við verjum þetta mál í einingu.