140. löggjafarþing — 36. fundur,  14. des. 2011.

ráðstafanir í ríkisfjármálum.

195. mál
[13:02]
Horfa

Vigdís Hauksdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Varðandi það að eignir séu varðar í stjórnarskrá og það megi því ekki innheimta skatt af þeim. Það væri náttúrlega mjög spennandi, miðað við þann grundvöll sem þessi ríkisstjórn hefur lagt með auðlegðarskatti, að einhver léti reyna á rétt sinn, að þessi skattur sé bara hreinlega ólöglegur og að vísa í þetta dómafordæmi hjá þýska stjórnlagadómstólnum væri mjög spennandi með tilliti til þess.

Varðandi lífeyrissjóðina höfum við hv. þm. Pétur H. Blöndal talað um þá fram og til baka og við erum ekki alveg sammála. Hann talar um að ég sé haldin almennum fordómum gagnvart lífeyrissjóðunum, sem er náttúrlega alls ekkert rétt. Hann rekur það að fólkið sjálft eigi lífeyrissjóðina og að eignir skuli vera jafnar skuldbindingum þannig að það sé núllstaða í lífeyrissjóðunum. Svo er alls ekki, lífeyrissjóðirnir eru eftir hrunið í bullandi mínus. Að fólkið sjálft eigi lífeyrissjóðina, jú, okkur er talin trú um það að við eigum lífeyrissjóðina og höfum forræði yfir þeim, en svo er alls ekki. Í fyrsta lagi eru lífeyrissjóðirnir allt of margir, það er verið að eyða allt of miklu fé, það er allt of mikil sóun í lífeyrissjóðakerfinu, t.d. að árið 2007 skuli lífeyrissjóðakerfið hafa kostað 3 þúsund milljónir. Það þarf engan smáfjölda til að vinna bara upp í rekstrarkostnað lífeyrissjóðanna sem er tekinn beint út af framtíðarlífeyrisgreiðslum. Það þarf að taka til í lífeyrissjóðakerfinu. Þó að þetta kerfi sé komið á hér er ekki þar með sagt að ekki þurfi að endurskoða það. Þarna eru geysilegir fjármunir, rúmir 2 þúsund milljarðar sem veltast um í kerfinu. Lífeyrissjóðirnir vilja ekki koma að uppbyggingu, atvinnuuppbyggingu í landinu og öðru. Þarna sitja einhverjir herrar sem hafa setið þar um ómunatíð og líta jafnvel á sjóðina sem sína eigin en ekki fólksins í landinu. Ábyrgð þeirra er mikil, því skal aldrei gleyma, en tapið á lífeyrissjóðunum er raunverulegt eins og staðan er núna.