ráðstafanir í ríkisfjármálum.
Frú forseti. Þó að einhver setjist upp í bílinn minn og fari að aka honum um stræti borgarinnar á ég bílinn engu að síður. Og sjóðfélagarnir eiga lífeyrissjóðina þó að einhverjir aðrir stjórni þeim. Það er kannski vandinn í þessu að það eru ekki sjóðfélagarnir sem stjórna lífeyrissjóðunum og stjórn lífeyrissjóðanna ber ekki beina ábyrgð gagnvart eigendum sjóðanna sem eru að mínu mati sjóðfélagarnir, því að enginn annar á réttindi í sjóðunum. Hver einasti vinnandi Íslendingur á réttindin og réttindin eru verðmæti og verðmætin standa á móti þeim eignum sem í sjóðunum eru.
Svo komum við að þeim vanda sem ég er reyndar að flytja frumvarp um, vonandi í dag eða næstu daga, um það að sjóðirnir séu sagðir eign sjóðfélaga og þeir kjósi stjórn. Þá held ég að þetta viðhorf muni breytast mjög mikið og mjög hratt. Þetta er nefnilega kannski stærsta eign hvers heimilis, það eru 120 þúsund heimili í landinu og þá er meðaleignin í lífeyrissjóðunum um 16 milljónir.